Pæling dagsins: Davíð algjörlega ósammála Hannesi Hólmsteini?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Háskóli Íslands hefur leitt umræðu um banka­hrunið og haldið reglu­lega fundi um ýmis­legt sem því teng­ist. Þá er Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur að kenna metn­að­ar­fullt nám­skeið um hrun bank­anna, þar sem ítar­lega er farið yfir málin. Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fessor og Guðni Th. héldu hádeg­is­fund um hrun bank­anna síð­ast­lið­inn mið­viku­dag þar sem farið var yfir nýjar upp­lýs­ingar um málin, meðal ann­ars fund­ar­gerðir frá banka­ráði Eng­lands­banka. Hannes Hólm­steinn virð­ist sann­færður um að Bretar eigi mikla sök á hruni bank­anna. Athygl­is­vert er að velta þess­ari sýn upp, og hvernig hún blasir Davíð Oddssyni fyrr­ver­andi for­manni stjórnar Seðla­banka Íslands og nú rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Nýlega gagn­rýndi hann rík­is­stjórn­ina fyrir að skera niður fjár­fram­lög til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, og það er alveg í sam­ræmi við það mat sem hann hefur lagt á gögn um bank­ana og upp­lýs­ingar sem blasa við um inn­viði þeirra.

Í kjarn­yrtu and­mæla­bréfi sínu til Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir hann meðal ann­ars orð­rétt. „Bank­arnir höfðu ber­sýn­lega verið not­aðir um langa hríð með gróf­asta hætti sem ein­hvers konar þrauta­vara­lána­stofn­anir fyrir yfir­skuld­sett og marg­veð­sett fyr­ir­tæki helstu eig­enda bank­anna og nán­ustu við­skipta­fé­laga þeirra. Rekstrar- og eigna­grund­völlur þeirra var því hrun­inn, löngu fyrir þann tíma, sem í almennri umræðu og í þessum skýr­ingum hafa verið kall­aðir hrundag­arnir. Þessari stöðu verður helst líkt við að læknar „opni“ sjúk­ling með krabba­meinsein­kenni og verði þegar ljóst að hann hafi verið fyrir löngu dauð­anum helg­aður, og engin lækn­is­úr­ræði geri framar gagn.“ Þetta mat Davíðs virð­ist stang­ast á við sýn Hannesar. Það er ekki oft sem það ger­ist...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár