Pæling dagsins: Ruglið í Ásmundi gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins dró fram það besta í flokknum sem hann til­heyrir með heimsku­legum ummælum sínum og for­dómum um múslima á Íslandi. Viðbrgöð flokks­ins voru nefni­lega til fyr­ir­myndar. Bjarni Bene­dikts­son, ásamt ung­liðum í flokknum, gjör­sam­lega klessu­keyrðu mál­flutn­ing Ásmundar og ein­angr­uðu ruglið í honum algjör­lega. Ásmundur seg­ist reyndar sjálfur hafa fengið hell­ing af sím­tölum frá fólki sem hann þekkir ekk­ert, sem þakk­aði honum kær­lega fyrir ummælin um múslima. Ásmundur sá ástæðu til þess að greina frá þessu í við­tali við fjöl­miðla í gær. Á sama tíma sagð­ist hann vera til­bú­inn til þess að funda með múslimum. Upplegg þess fundar ætti að vera nokkuð aug­ljóst, að mati bréf­rit­ara; Ásmundur ætti að biðj­ast afsök­unar á heimsku­legum ummælum sínum, og að þau myndi hann aldrei aftur láta út úr sér.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár