Áslaug Arna: Átakanlegt að vera í sama flokki og Ásmundur

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurði að því á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­aður, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“

Í við­tali við Vísi segir Ásmundur að hann sé að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af því að hér leyn­ist slíkt fólk. Ég hef ekki hug­mynd um það. Mér finnst að við eigum að taka umræð­una um það. Hvað við viljum gera og hvernig við viljum standa að þessu,“ segir Ásmundur og þver­tekur fyrir að ummæli hans lit­ist af ras­isma.

Er að stinga upp á ofsóknum

Ummæli Ásmundar hafa vakið upp hörð við­brögð, meðal ann­ars úr hans eigin flokki. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Heimdallar, segir á Facebook-síðu sinni að það sé „væg­ast sagt átak­an­legt“ að vera í sama flokki og Ásmundur. „Fordómar og fáfræði ein­kenna ummæli hans og passa engan veg­inn við þær frelsis og frjáls­lynd­is­hug­myndir sem ég trúi að meiri­hluti Sjálf­stæð­is­manna standa fyrir. Velti fyrir mér hvort hann eigi ekki betur heima í öðrum flokki sem hefur gælt við þessar skoð­anir áður með mjög ósmekk­legum hætti."

[caption id="attachment_16703" align="alignnone" width="488"] Áslaug Arna er harð­orð í garð Ásmundar.[/caption]

Þá hefur þing­maður Pírata, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, gagn­rýnt ummæli Ásmundar harð­lega. Hann segir þessa umræðu vera um það hvort Ísland ætti að heim­ila ofsóknir á hendur agn­arsmáum minni­hluta­hóp vegna trú­ar­bragða hans. „Þú varst í alvör­unni að stinga upp á ofsóknum án þess að þú endi­lega gerir þér grein fyrir því.

Uppfært 10:30: Magnús Júl­í­us­son, for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, segir á Facebook-síðu sinni að ummæli Ásmundar vekji hjá sér óhug og séu í engu sam­ræmi við grunn­gildi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um ein­stak­lings­frelsi og borg­ara­rétt­indi. „Ásmundur Frið­riks­son þarf að átta sig á því að sjálf­sögð borg­ara­rétt­indi falla ekki niður vegna hryðju­verka­árása ofstæk­is­manna.“

Uppfært 11:40: Áslaug Frið­riks­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur einnig tjáð sig um málið. Hún segir Ásmund á algjörum villi­götum og að hann eigi að biðj­ast afsök­unar. „Er það virki­lega hug­mynd þing­manns­ins að fara að draga fólk í dilka eftir því hvaða trú það aðhyllist algjör­lega þvert á stjórn­ar­skrá og almenn mann­rétt­indi í land­inu.“

Færsla Ásmundar:


„Erum við örugg á Íslandi.


Í Danmörku eins og um allan heim er hug­ur­inn með Frönsku þjóð­inni. Við­bjóðs­leg hryðju­verk í nafni múslima er for­dæmd. Ég velti fyrir mér hvort við séum óhult á Íslandi.


Ég spyr; Hefur inn­an­rík­is­ráðu­neytið eða lög­reglan gripið til ein­hverra ráð­staf­ana til að vernda Íslend­inga fyrir slíkum árásum? Hefur bak­grunnur þeirra 1500 múslima sem búa á Íslandi verið kann­aður og hvort ein­hverjir "íslenskir múslimar" hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í Afganistan, Sýrland eða öðrum löndum þar sem óöld ríkir meðal múslima. Mér hefur ekki áður dottið í hug að spyrja slíkra spurn­inga því ég trúi alltaf á það góða í öllu fólki en það á ekki lengur við þegar öryggi þjóð­ar­innar er undir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár