Pæling dagsins: Pólitískur bastarður - Hvað með Kúbu-leiðina?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Fyr­ir­sjá­an­legt er að eitt mesta vand­ræða­mál rík­is­stjórn­ar­innar á þessu ári verði nátt­úrupass­inn svo­kall­aði. Bréf­rit­ari spáir því að þetta verði mik­ill póli­tískur bast­arður fyrir rík­is­stjórn­ina, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni deila um málið bak við tjöldin og einnig opin­ber­lega, og að erf­ið­lega muni ganga að ná sam­stöðu í ferða­þjón­ust­unni. Ástæðan er sú, að alltof mörgum spurn­ingum er enn ósvarað um fram­kvæmd­ina, og svo hafa félags­menn í Samtökum ferða­þjón­ust­unnar ein­fald­lega hafnað þess­ari leið í atkvæða­greiðslu. Kannski ætti Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, að horfa til Kúbu þegar kemur að lausn á gjald­töku í ferða­þjón­ustu. Fídel Castro og stjórn hans - og síðar Raúl Castro og hans stjórn - hefur farið frekar ein­falda leið í þessum málum. Á Kúbu þurfa allir útlend­ingar að greiða 40 Banda­ríkja­dali, jafn­virði um 5.200 króna í reiðufé, í rík­is­kass­ann þegar farið er úr landi. Einfalt og skil­virkt...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár