Launakostnaður íslenska ríkisins vegna lækna eykst um 30 prósent

Launa­kostn­aður sem íslenska ríkið greiðir vegna lækna mun hækka um tæp 30 pró­sent í kjöl­far þeirra kjara­samn­inga sem gerðir voru við lækna í síð­ustu viku. Ekki er talið ósenni­legt að heild­ar­kostn­að­ar­auki rík­is­ins verði mun hærri en 30 pró­sent þegar uppi er staðið þar sem samn­ing­ur­inn sem gerður var við Lækna­fé­lag Íslands felur líka í sér kerf­is­breyt­ingar sem gætu orðið kostn­að­ar­samar. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Samn­ing­ur­inn sem und­ir­rit­aður var gildir til 30. apríl 2017 en þorri launa­hækk­an­anna koma til fram­kvæmda í ár. Í Morg­un­blað­inu segir „Samn­ing­ur­inn er aft­ur­virkur frá júní í fyrra með 3,6% hækkun sem leggst ofan á launa­grunn­inn og launa­taflan hækkar svo almennt um 10,2% frá sein­ustu ára­mótum. Ný launa­tafla tekur gildi sem felur í sér mis­miklar hækk­anir fyrir lækna, þar sem dregið er úr vægi álags­þátta í launum. Sam­komu­lag varð einnig um að læknar fái 160 þús. kr. ein­greiðslu en samn­ingur þeirra rann út í jan­úar í fyrra. Kveðið er á um launa­hækkun um mitt þetta ár á móti kerf­is­breyt­ingum. Þá eru í samn­ingnum launa­pottar sem greiða á úr í tengslum við skipu­lags­breyt­ingar og verk­efni. Auk þessa hækka laun svo einnig á árunum 2016 og 2017".

Samn­ingar náð­ust loks við lækna aðfara­nótt 7. jan­úar síð­ast­lið­ins. Verk­falls­að­gerðir þeirra höfðu þá staðið yfir frá 27. októ­ber 2014. Gunnar Björns­son, for­maður samn­inga­nefndar rík­is­ins, sagði af þessu til­efni í sam­tali við RÚV að launa­hækk­anir lækna sam­kvæmt nýja samn­ingnum hefðu gjarnan mátt vera lægri.

Eig­in­legt inni­hald kjara­samn­ings­ins verður ekki kynnt opin­ber­lega fyrr en búið er að fara yfir það með félags­mönnum Lækna­fé­lags­ins. Þeir munu í kjöl­farið kjósa um samn­ing­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár