Reykjanesbær verður brátt eina sveitarfélagið eftir í Fasteign hf.

Sveit­ar­fé­lagið Norð­ur­þing á nú í við­ræðum við Eign­ar­halds­fé­lagið Fasteign um að kaupa til baka eignir sveit­ar­fé­lags­ins út úr eign­ar­halds­fé­lag­inu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru samn­inga­við­ræður langt komnar, og von er á því að kaup­samn­ingar verði und­ir­rit­aðir á næst­unni.

Bæj­ar­stjórn Fljóts­dals­hér­aðs sam­þykkti á fundi sínum þann 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn að nýta sér kaup­rétt­ar­á­kvæði í leigu­samn­ingi sínum við Fasteign hf. og keypti til baka fast­eignir sem áður voru í eigu sveit­ar­fé­lags­ins í lok des­em­ber. Um er að ræða sex deilda leik­skóla­hús­næði við Skóg­ar­lönd á Egils­stöðum og gervi­gras­völl ásamt þjón­ustu­rými í Fellabæ. Fjárhæð leigu­skuld­bind­inga Fljóts­dals­hér­aðs gagn­vart Fasteign ehf. nam 697 millj­ónum króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi sveit­ar­fé­lags­ins fyrir árið 2013. Arion banki fjár­magn­aði kaup sveit­ar­fé­lags­ins.

Með brott­hvarfi Fljóts­dals­hér­aðs og yfir­vof­andi brott­hvarfi Norð­ur­þings út úr Eign­ar­halds­fé­lag­inu Fasteign, verður Reykja­nes­bær eina sveit­ar­fé­lagið eftir í félag­inu.

Leiguskuldbindingar upp á 13,7 milljarða króna


Samkvæmt úttekt Haralds L. Har­alds­sonar hag­fræð­ings á rekstri og fjár­málum Reykja­nes­bæjar frá því í ágúst, nema leigu­skuld­bind­ingar sveit­ar­fé­lags­ins 13,7 millj­örðum króna. Leigu­skuld­bind­ing­arnar nema um 34 pró­sentum af heildar skuldum og skuld­bind­ingum sveit­ar­fé­lags­ins, en flestar hús­eignir Reykja­nes­bæjar eru leigðar af Fasteign ehf. Til sam­an­burðar eru lang­tíma­skuld­bind­ingar Reykja­nes­bæjar við lána­stofn­anir 41 pró­sent af skuldum sveit­ar­fé­lags­ins. Í úttekt­inni er lagt til að kann­aður verði mögu­leik­inn á að greiða upp leigu­skuld­bind­ing­arnar, eða fá þær lækk­aðar.

Árið 2002 sam­ein­uð­ust nokkur sveit­ar­fé­lög um að stofna sér­stakt eign­ar­halds­fé­lag sem þau myndu selja fast­eign­irnar sínar inn í, sem félagið myndi síðan sér­hæfa sig í að reka og ann­ast upp­bygg­ingu nýrra fast­eigna fyrir sveit­ar­fé­lögin. Eign­ar­halds­fé­lagið Fasteign hf var svo stofnað árið 2003.

Félagið hefur verið umdeilt frá stofnun, en það lenti í tölu­verðum fjár­hags­vand­ræðum í kjöl­far banka­hruns­ins meðal ann­ars vegna erf­iðrar stöðu Álfta­ness og lána í erlendri mynt. Fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­inu félags­ins lauk í árs­lok 2012, en þá voru eig­endur og leigu­takar félags­ins níu sveit­ar­fé­lög ásamt Arion banka. Sveit­ar­fé­lögin sem um ræðir voru Fjarð­ar­byggð, Fljóts­dals­hérað, Grímsnes- og Grafn­ings­hreppur, Norð­ur­þing, Reykja­nes­bær, Sand­gerði, Vest­manna­eyjar, Vogar og Ölfus.

Í kjöl­far fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar Fast­eignar voru gerðir nýir leigu­samn­ingar við sveit­ar­fé­lögin þar sem leigu­greiðsl­urnar voru lækk­aðar umtals­vert auk þess sem við­hald fast­eign­anna færð­ist yfir á hendur sveit­ar­fé­lag­anna. Þá gafst sveit­ar­fé­lög­unum sömu­leiðis kostur á að kaupa fast­eignir sínar til baka, sem þau hafa nú flest gert eins og áður segir.

Útganga sveit­ar­fé­lags­ins Norð­ur­þings út úr félag­inu er yfir­vof­andi eins og framan greinir, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans hafa engar við­ræður átt sér stað á milli full­trúa Reykja­nes­bæjar og Fast­eignar ehf. um mögu­leg end­ur­kaup sveit­ar­fé­lags­ins á eignum sínum út úr eign­ar­halds­fé­lag­inu. Eins og áður segir, verður Reykja­nes­bær eitt sveit­ar­fé­laga eftir í Fasteign þegar Norð­ur­þing gengur úr félag­inu á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár