Karolina Fund: Málmhaus vill koma út á DVD á spænsku og ensku

Davíð Óskar Ólafsson er einn af eig­endum Mystery sem er fram­leiðslu­fyr­ir­tækið á bak við kvik­mynd­ina Málmhaus. Hann hefur starfað við kvik­mynda­gerð frá því að hann var 18 ára gam­all og stofn­aði Mystery með Árna Fil­ippus­syni árið 2006. Þeir hafa nú fram­leitt fimm íslenskar kvik­myndir frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins og Málmhaus eftir Ragnar Bragason er sú fjórða í röð­inni.

Núna eru þeir að hóp­fjár­magna útgáfu á dvd útgáfu á mynd­inni fyrir ensku- og spænsku­mæl­andi markað. Við tókum Davíð tali.

[caption id="attachment_16510" align="alignnone" width="800"] Myndin er þroska­saga um missi og hvernig tek­ist er á við sorg­ina.[/caption]

Þroskasaga um missi


Segðu mér frá Málmhaus. Hún hefur fengið frá­bærar við­tökur er það ekki?

„Málmhaus er þroska­saga um missi og hvernig þú kemst í gegnum sorg­ina. Myndin fékk frá­bæra dóma hérna heima. Enginn íslensk mynd hefur verið til­nefnd til eins margra Eddu verð­launa og Málmhaus eða 16 tals­ins og unnum við 8 af þeim. Þannig að við erum nokkuð vissir um að við gerðum mjög góða mynd."

https://www.youtube.com/watch?v=dyxhcNsjWKI

Þið eruð að vinna að því að koma mynd­inni til útlanda með því að fjár­magna textaða DVD útgáfu á ensku og spænsku. Hafið þið fundið fyrir áhuga erlendis frá?

„Já, alveg frá því að við heims­frum­sýndum Málmhaus á Toronto kvik­mynda­há­tíð­inni höfum við fengið virki­lega góð við­brögð við henni erlendis. Við höfum fengið frá­bæra dóma um heim allan og höfum við selt mynd­ina í dreyf­ingu til um 15 landa og þar á meðal eru Banda­ríkin, Kanada, Ástralía og Suður Ameríka. Myndin hefur einnig unnið til verð­launa erlendis þannig að það er búið að taka gríð­ar­lega vel í hana hvert sem hún fer. Bara til þess að gefa smá hug­mynd um áhugan sem er fyrir mynd­inni þá erum við með yfir 40.000 likes á síð­unni okkar á Facebook og það hefur verið horft á trailer­inn okkar yfir 228.000 sinnum á youtube. Þessar tölur held ég séu þær hæstu sem nokkur íslensk mynd hefur fengið þannig að við erum afar ánægðir með þetta og núna erum við að reyna að safna pen­ingum til þess að geta gefið hana út fyrir aðdá­endur okkar erlendis og íslend­ingar geta auð­vitað einnig hjálpað til við að gera þetta að veru­leika."

[caption id="attachment_16512" align="alignnone" width="1024"] Myndin er þroska­saga um missi og hvernig tek­ist er á við sorg­ina.[/caption]

 

Mikill niðurskurður með nýrri ríkisstjórn


Hver er staða Íslenskrar kvik­mynda­gerðar í dag að þínu mati?

„Staðan er ekki nægi­lega góð. Við höfum orðið fyrir miklum nið­ur­skurði frá því að nýja rík­i­s­tjórnin tók við völdum og það lítur ekki út fyrir að það sé að breyt­ast eitt­hvað á næst­unni. Fyrir nokkrum árum stóðum við í sömu stöðu og þurftum að útskýra fyrir þáver­andi rík­i­s­tjórn að kvik­mynda­gerð er iðn­aður en ekki hobbý. Það er sorg­legt því að kvik­mynda­gerðin sjálf sem iðn­aður hefur ekki verið jafn sterkur í mörg ár og þá er ég að tala um gæði verk­efn­ana sem koma út. Mynd­irnar sem eru gerðar ferð­ast víða og vinna til verð­launa og á síð­asta ári unnu íslenskar kvik­myndir um 30 erlend verð­laun þar á meðal Norð­ur­lands­verð­launin sem er frá­bært. Það er synd að rík­i­s­tjórnin sjái sér ekki hag í að setja meiri pen­ing í iðnað sem styrkir menn­ingu okkar og á sama tíma er frá­bær landskynn­ing og dregur ferða­menn til lands­ins á hverju ári."

[caption id="attachment_16511" align="alignnone" width="1024"] Árni Fil­ipp­us­son og Davíð Óskar Ólafsson.[/caption]

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár