DV boðar hertar samskiptareglur í athugasemdakerfi

Eggert Skúlason, nýráð­inn annar rit­stjóri DV, boðar hertar sam­skipta­reglur í athuga­semda­kerfi á vef­síðu mið­ils­ins, og að þær verði kynntar bráð­lega. Þetta kemur fram í fyrsta leið­ara sem Eggert skrifar fyrir DV, og birt­ist í morgun.

Þar segir: „Athuga­semda­kerfi DV hefur oftar en ekki verið skot­spónn þeirra sem telja að umræðan á net­inu sé fyrir neðan allar hellur og oft og tíðum ótæk. Auðvitað er það svo að oft er umræðan í þessu kerfi góð og jafn­vel mál­efna­leg. Á nýju ári mun DV.is setja strang­ari reglur um það með hvaða hætti fólk tjáir sig. Þessar reglur verða kynntar hið fyrsta og eru við­leitni til þess að bæta orð­ræð­una.“

Strigakjöftum veitt sakaruppgjöf


Um leið og nýju sam­skipta­regl­urnar hjá DV verða kynntar mun mið­ill­inn veita þeim „sak­ar­upp­gjöf“ sem hafa verið bann­aðir frá þátt­töku í athuga­semda­kerf­inu. „Með því sitja allir við sama borð og geta tjáð sig og vita þá af nýjum reglum. Víða um heim eru athuga­semda­kerfi af þessu tagi í boði fyrir áskrif­endur og almenn­ing. Að sama skapi gilda reglur um þá tján­ingu. DV vill með nýjum reglum stuðla að betri, sann­gjarn­ari og mál­efna­legri umræðu á vef­síðu sinni DV.is,“ skrifar Eggert Skúlason í leið­ara.

Þá segir rit­stjór­inn að rit­stjórn­ar­stefna blaðs­ins muni verða sú sama að meg­in­uppi­stöðu. „Ára­móta­heitið er ein­falt í sniðum og lýtur að því að vanda sig aðeins meira á nýju ári. Þegar dansað er á brún­inni þurfa menn að standa klárir á hvar þeir stíga niður.“

Að lokum skrifar Eggert: „DV er fjöl­mið­ill sem gagn­rýnir og veitir aðhald. DV er hvorki í stjórn né stjórn­ar­and­stöðu. DV fer sínar eigin leiðir og er ekk­ert óvið­kom­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár