Pæling dagsins: Lifi tjáningarfrelsið!

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Klukkan 10:28 í gær­morgun birti franska skop­mynda­ritið Charlie Hebdo mynd á Twitter aðgangi sínum af leið­toga Íslamska rík­is­ins, Abu Bakr al-Baghdadi. Um tutt­ugu mín­útum síðar höfðu byssu­menn vopn­aðir Kal­ishnikov rifflum ruðst inn á rit­stjórn blaðs­ins og drepið tíu blaða­menn, þar af fjóra teikn­ara. Tveir lög­reglu­menn voru einnig skotnir til bana, í þess­ari ömur­legu árás. Skot­markið í árásinni var ekki aðeins rit­stjórn Charlie Hebdo, fólk sem þar vinnur, heldur líka tján­ing­ar­frelsið sjálft. Skila­boðin eru skýr; ef þú teiknar svona mynd, þá drep ég þig, og mér er alvara. Við­brögðin gegn þess­ari skelfi­legu árás hafa verið afar sterk og jákvæð. Blaða­menn hafa tekið höndum saman um að þessi árás á tján­ing­ar­frelsið verði ekki liðin, og tekur Kjarninn svo sann­ar­lega heils hugar undir með þeim sem for­dæma þessa skelfi­legu árás. Hún var ekki aðeins hrotta­fengin og ömur­leg gagn­vart því fólki sem fyrir henni varð, og aðstand­endum þess, heldur vekur hún fólk til umhugs­unar um mik­il­vægi frjálsrar fjöl­miðl­unar og tján­ing­ar­frelsis. Það segir sína sögu um við­horf sam­starfs­manna þeirra sem lét­ust á rit­stjórn Charlie Hebdo, að skömmu eftir árás­ina var myndin af Abu Bakr al-Baghdadi birt á Facebook síðu rits­ins. Skil­boðin eru skýr; þið beygið okkur ekki með morðum og ofbeldi. Lifi tján­ing­ar­frelsið.

Meil­le­urs vœux, au fait. pic.twitter.com/a2JOhqJZJM

— Charlie Hebdo (@Charlie_Hebdo_) January 7, 2015

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár