Pæling dagsins: Láglaunaveruleikinn étur landið að innan

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Það er ekki hægt annað en að vona það besta, þegar kemur að lækna­deil­unni. Vonandi fer hún að leys­ast. Magnús Karl Magn­ús­son, for­seti lækna­deildar Háskóla Íslands og pró­fessor í lyfja- og eit­ur­efna­fræði, skrif­aði áhuga­verða og skýra grein á vef Kjarnans á dög­unum. Þar veltir hann lækna­deil­unni fyrir sér í hinu stóra sam­hengi hlut­anna, efna­hags­legum aðstæðum og innviðum sam­fé­lags­ins. Lækna­deilan er sann­ar­lega einn angi af því, að sam­keppn­is­hæfni Íslands er í upp­námi vegna ein­angr­unar og lág­launa­veru­leika. Það mun ekki ger­ast smátt og smátt, að inn­viðir sam­fé­lags­ins veik­ist, heldur mun það ger­ast hratt og örugg­lega, ef ekk­ert breyt­ist. Þetta er þegar byrjað að ger­ast, eins og lækna­deilan er skýrt dæmi um. Mikill land­flótti úr verk­fræð­i­stétt er annað dæmi. Það er ekki ósann­gjörn krafa að gera til stjórn­mála­manna, að þeir leggi fram skýra fram­tíð­ar­sýn um það hvernig Ísland getur brot­ist úr lág­launa­veru­leik­anum og við­haldið sam­keppn­is­hæfni til fram­tíðar. Svör óskast...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár