Útvarp Saga gjaldþrota - reksturinn kominn undir nýja kennitölu

Einka­hluta­fé­lagið X-2121 var úrskurðað gjald­þrota 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en félagið hét áður Útvarp Saga ehf. Nafni þess var breytt 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og Arn­þrúður Karls­dóttir, eig­andi félags­ins, ritar undir nafna­breyt­ing­una.

Rekstur Útvarps Sögu heyrir nú undir einka­hluta­fé­lagið SagaNet ehf., sem sömu­leiðis er í 100 pró­senta eigu Arn­þrúðar Karls­dóttur. Félagið var stofnað í febr­ú­ar­mán­uði síð­ast­liðnum.

Útvarps­stöðin var dæmd í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í maí­mán­uði árið 2013 til að greiða Sigurði G. Tómassyni útvarps­manni, sem jafn­framt kom að stofnun stöðv­ar­innar, 745 þús­und krónur í van­goldin laun auk máls­kostn­aðar. Útvarp Saga áfrýj­aði nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms til Hæsta­réttar Íslands, sem stað­festi nið­ur­stöð­una í des­em­ber 2013.

Í grein í Séð & heyrt, sem birt­ist á síð­asta ári, er haft eftir Arnþrúði að hún hygg­ist ekki una nið­ur­stöðu Hæsta­réttar og útvarps­stöðin stefni í gjald­þrot vegna þess. Þá segir í grein­inni: „Arn­þrúður ætlar þó ekki að leggja árar í bát strax þótt krafan um gjald­þrot verði tekin fyrir í byrjun sept­em­ber. Hún seg­ist vona að Útvarp Saga fái lifað og minnir hlust­endur og vel­unn­ara stöðv­ar­innar á að hægt er að leggja henni lið á söfn­un­ar­reikn­ingnum 0301-26-111100 á kenni­töl­unni 640214-0310.“

Athygli vekur að kennitalan sem er skráð fyrir söfn­un­ar­reikn­ingnum, er kennitala SagaNet ehf., en ekki Útvarps Sögu.

Í sam­tali við Kjarnann sagði Arn­þrúður Karls­dóttir að rekstur Útvarps Sögu hefði verið seldur öðru félagi í febr­úar. Hún vildi að öðru leyti engar upp­lýs­ingar veita blaða­manni.

Kjarninn náði ekki tali af skipta­stjóra X-2121 ehf. (Útvarp Saga) við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár