Pæling dagsins: Engin auðmýkt þrátt fyrir lekalögbrotin

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Ummæli for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, í Krydd­síld­inni á gaml­árs­dag, þess efnis að leki úr stjórn­sýsl­unni á upp­lýs­ingum um per­sónu­lega hagi fólks hafi verið algengur í gegnum tíð­ina, hafa eðli­lega vakið athygli. Sig­mundur Davíð tjáði sig um þessi ummæli áBylgunni í gær, án þess að færa fram efn­is­leg rök fyrir máli sínu, nefna dæmi. Áður hafði Jóhannes Þór Skúlason, einn aðstoð­ar­manna for­sæt­is­ráð­herra, reynt að skýra málið í stuttu við­tali við mbl.is, en allt var það án nokk­urra dæma um eitt eða neitt. Einungis ábend­ingar, sem virt­ust vera eft­irá­skýr­ingar, til þess að lág­marka skað­ann af þessum ummælum for­sæt­irs­ráð­herra. Það merki­lega við þessi dæma­lausu ummæli er að þau féllu í beinu sam­hengi við þann stóra póli­tíska skandal, þegar per­sónu­upp­lýs­ingum var lekið úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu af aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra, sem fag­leg lög­reglu­rann­sókn stað­festi, og hann fékk síðan dóm fyrir að lokum, eftir játn­ingu á lög­brot­inu. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér vegna þessa, og öll kurl eru ekki komin til grafar enn í mál­inu þar sem vitað er að Hanna Birna hafði bein afskipti af rann­sókn máls­ins, sem er dæma­laust og hugs­an­lega varðar það við lög um mis­beit­ingu valds, ef rétt reyn­ist. Allt gerð­ist þetta hjá ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs. Enginn veit ennþá hvað Sig­mundur Davíð er að tala um, og það er mikil þörf á því að hann skýri mál sitt frekar, í stað þess að skilja starfs­fólk íslensku stjórn­sýsl­unnar eftir í lausu lofti undir þeim ásök­unum að vera að leka upp­lýs­ingum um per­sónu­lega hagi fólks í tíma og ótíma. Sig­mundur Davíð mætti svo sann­ar­lega vera auð­mýkri gagn­vart nákvæm­legu þessu atriði, það er leka á upp­lýs­ingum um per­sónu­lega hagi fólks, í ljósi hins for­dæma­lausa skandals sem hinn ólög­legi leki úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu er fyrir rík­is­stjórn hans.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár