Forsætisráðherra spáir meiri hagvexti hér en annars staðar í Evrópu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir skekkju í útreikn­ingum skýra nei­kvæðan hag­vöxt á þriðja árs­fjórð­ungi. Samkvæmt síð­ustu Hag­tíð­indum Hagstofu Íslands mæld­ist nei­kvæður hag­vöxtur á þriðja árs­fjórð­ungi, upp á 0,2 pró­sent. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var hag­vöxtur aðeins 0,5 pró­sent en Hagstofa Íslands hafði sjálf spáð 2,7 pró­senta hag­vexti árið 2014, í spá sem hún birti um miðjan nóv­em­ber.

„Þetta er nú eitt­hvað málum blandið með hag­vöxt­inn. Það var ein árs­fjórð­ungs­mæl­ing hjá Hag­stof­unni sem kom mjög á óvart og var ekki í sam­ræmi við neitt sem menn höfðu mælt ann­ars staðar. Mér heyr­ist menn gera ráð fyrir því að þetta sé bara skekkja vegna þess hvernig fjár­fest­ingar, inn­flutn­ingur og annað rað­ast á árið, en þegar menn skoða árið í heild þá muni hag­vöxtur hér verða umtals­verður, og meiri en ann­ars staðar í Evrópu.“ sagði for­sæt­is­ráð­herra í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar jókst einka­neysla lítið sem ekk­ert á þriðja árs­fjórð­ungi, eða um 0,7 pró­sent miðað við sama tíma­bil árið áður. Aðspurður um minni einka­neyslu en vonir manna stóðu til, svar­aði Sig­mundur Davíð: „Það sýnir okkur þá að full­yrð­ingar sem við heyrðum alloft á síð­asta ári um það að hag­vöxtur væri bara drif­inn áfram af einka­neyslu, og væri þar af leið­andi á ein­hvern hátt óæski­legur hag­vöxtur, þetta reynd­ist bara rangt. Og sýnir þá að aðgerð­irnar sem ráð­ist var í í skulda­mál­unum voru ekki ein­göngu jafn efna­hags­lega jákvæðar og við höfðum fært rök fyrir, þær voru bein­línis efna­hags­lega nauð­syn­legar.“

Þá sagði Sig­mundur Davíð að skulda­fargið sem legið hafi á sam­fé­lag­inu frá banka­hruni hafi haldið aftur af eðli­legri einka­neyslu, þannig að grípa hafi þurft inn í. „Þessar aðgerðir munu held ég reyn­ast enn þá meiri efna­hags­bót en spáð hafði verið, og ég minni líka á það að þær munu hafa áhrif ár og ára­tugi fram í tím­ann. Árið 2036 verður fólk ennþá með meiri ráð­stöf­un­ar­tekjur en ella út af þessum aðgerðum. Og upp­safn­aður sparn­aður af greiðslum af hús­næð­is­lánum getur numið tugum millj­óna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár