Segir að hreyft verði við fjármagnshöftunum síðar í mánuðinum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, segir að búast megi við að næstu skref við afnám fjár­magns­hafta verði stigin síðar í mán­uð­inum. Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun. „Menn munu sjá held ég ein­hverja hreyf­ingu á þessu, þegar í þessum mán­uði,“ sagði Sig­mundur Davíð í útvarps­þætt­inum.

For­sæt­is­ráð­herra er bjart­sýnn á að það muni ganga vel að vinda ofan af fjár­magns­höft­unum, sem hafa verið við lýði hér á landi nán­ast frá banka­hruni, og þakkar það mik­illi og góðri und­ir­bún­ings­vinnu. „En menn verða að hafa það hug­fast að eft­ir­stöðv­arnar af banka­hrun­inu eru enn þá að miklu leyti til staðar og það er ekk­ert annað en eðli­legt að þessi fyr­ir­tæki, eða slita­búin, leggi sitt af mörkum, eins og þau voru reyndar byrjuð að gera núna með sér­stakri skatt­lagn­ingu, til upp­bygg­ingar í sam­fé­lag­inu.“

Sig­mundur Davíð segir að í öðrum löndum hafi stjórn­völd farið þá leið að skatt­leggja fjár­mála­fyr­ir­tækin eða sekta þau, oft með gríð­ar­lega háum sektum, til að láta þau bæta sam­fé­lögum þann skaða sem starf­semi þeirra hafi valdið. „Svo­leiðis að það er nú ýmis­legt sem væri mjög rétt­læt­an­legt í þessu, og sama hvaða leið verður farin þá verður hún alla­vega til þess hönnuð að tryggja að það lendi ekki meira fjár­hags­legt tjón á almenn­ingi, þvert á móti að þetta loka­upp­gjör á banka­hrun­inu verði til þess fallið að ná til baka ein­hverjum af þeim skaða sem orðið hefur.“

Að lokum sagði for­sæt­is­ráð­herra varð­andi fjár­magns­höftin: „Sú leið sem verður farin á að vera ann­ars vegar til þess fallin að gera okkur kleyft að fara að aflétta höftum og hins vegar, sem er bein­tengt hinu, hún verður að vera til þess fallin að skap­ist þetta marg­um­rædda svig­rúm sem rætt var mikið hér í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, enda er það for­senda þess að það verði hægt að slaka á höft­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár