Forsætisráðherra á von á nýrri ESB tillögu á væntanlegu vorþingi

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra á von á því að Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra leggi fram nýja til­lögu varð­andi aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu á vor­þingi. Þetta kom fram í máli for­sæt­is­ráð­herra í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Aðspurður um stöðu aðild­ar­um­sóknar Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu svar­aði Sig­mundur Davíð: „Það er orðið ósköp lítið eftir af umsókn­inni. Það var farið þarna í að ræða ein­hverja kafla, en sú vinna heldur ekki gildi sínu lengur bæði vegna þeirra hröðu breyt­inga sem eru að eiga sér stað í Evr­ópu­sam­band­inu og vegna þess að það er ekki í sam­ræmi við stefnu stjórn­valda að fall­ast á allt það sem síð­asta rík­is­stjórn hefði verið til­búin til að fall­ast á. Þannig að því leyt­inu til erum við á byrj­un­ar­reit.“

Þá sagði for­sæt­is­ráð­herra að Evr­ópu­sam­bandið hafi áréttað að engum nýjum löndum verði hleypt inn í sam­bandið næstu fimm árin. „Og þetta hefur kannski orðið til þess að menn hafa kannski aðeins slakað á í þessum Evr­ópu­sam­band­spæl­ingum.“

Sig­mundur Davíð segir aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu hafa fallið hratt niður lista for­gangs­mála vegna þess á und­an­förnum miss­erum. „En þó breytir það ekki því að auð­vitað er það ekki æski­leg staða að svona stórt mál sé skilið eftir í lausu lofti.“

Aðspurður um hvort málið verði áfram í önd­un­ar­vél, eins og þátta­stjórn­and­inn Sigurjón M. Egilsson orð­aði það, svar­aði for­sæt­is­ráð­herra: „Það er eins og ég segi ekki æski­legt að svona stórt mál sé skilið eftir í lausu lofti og ég held að það væri þess vegna ágæt­lega á því að þingið á ein­hvern hátt árétt­aði hvernig það sér þetta og utan­rík­is­ráð­herr­ann hefur boðað það, eða að minnsta kosti haldið því opnu, að hann komi með nýja til­lögu um málið sem ég geri ráð fyrir að yrði þá vænt­an­lega ein­hvern tím­ann fljót­lega á þessu ári.“ Aðspurður um hvort hann búist við til­lög­unni á vænt­an­legu vor­þingi, kvað for­sæt­is­ráð­herra svo vera.

„Hann (utan­rík­is­ráð­herra) metur þá núna hvernig staðan er milli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins og hvað þurfi að koma fram í ljósi þess af hálfu þings­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár