Jón Arnór: „Ég er lánsamur að vera umvafinn góðu fólki“

„Þetta kom mjög skemmti­lega á óvart. Ég var ekki að búast við að vinna þetta eða hafði hugsað út í það sér­stak­lega ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn,“ segir körfu­bolta­kapp­inn Jón Arnór Stef­áns­son, nýkrýndur Íþrótta­maður árs­ins 2014, í sam­tali við Kjarnann.

Jón Arnór hefur verið einn fremsti körfu­bolta­maður þjóð­ar­innar und­an­farin ár. Hann lék til að mynda stórt hlut­verk í því að tryggja íslenska karla­lands­lið­inu þátt­töku­rétt á loka­móti stór­móts í körfu­bolta, í fyrsta skipti í sög­unni, með því að fara fyrir lið­inu í loka­leikjum þess í und­ankeppn­inni, samn­ings­laus og ótryggður fyrir meiðslum. „Þetta er mikil við­ur­kenn­ing fyrir mig og körfu­bolta­hreyf­ing­una eins og hún leggur sig á Íslandi, og ég er mjög stoltur,“ segir Jón Arnór.

Fyrsti körfuboltamaðurinn í 48 ár

Þetta var í níunda skiptið að Jón Arnór var á meðal þeirra tíu íþrótta­manna sem komu til álita til að hreppa verð­launin að mati Samtaka íþrótta­f­rétta­manna. Jón Arnór er eins og kunn­ugt er bróðir Ólafs Stef­áns­sonar hand­bolta­manns, en þeir eru fyrstu bræð­urnir til að vera útnefndir íþrótta­menn árs­ins. Þá hefur aðeins einn körfu­bolta­maður verið val­inn íþrótta­maður árs­ins á undan Jóni Arnóri, en það var fyrir 48 árum þegar Kolbeinn Pálsson hlaut tit­il­inn.

Jón Arnór var ekki við­staddur verð­launa­af­hend­ing­una í gær­kvöldi, en hann er á Spáni þar sem hann leikur með körfu­boltalið­inu Unicaja Málaga í spænsku úrvals­deild­inni.

Þakklátur þeim sem hafa stutt sig

Í sam­tali við Kjarnann segir Jón Arnór að þakk­læti sé honum ofar­lega í huga á þessum tíma­punkti. „Ég er lán­samur að vera umvaf­inn góðu fólki sem hefur stutt ötul­lega við bakið á mér í gegnum tíð­ina. Fyrst og fremst for­eldrar mínir, konan mín og mínir nán­ustu sem hafa alltaf haft óbilandi trú á mér og verið til staðar fyrir mig. Ég vil nota tæki­færið og minn­ast á Benna þjálf­ara (Benedikt Guð­munds­son), sem er mér mjög kær og á stóran þátt í mínum körfu­bolta­ferli. Hann tók mig undir sína leið­sögn þegar ég byrj­aði að æfa sem gutti og sýndi mér leið­ina, hverju ég þyrfti að fórna til að ná langt í íþrótt­inni. Ég er honum þakk­látur fyrir allt sem hann kenndi mér innan vallar sem utan, og fyrir tím­ann sem hann fórn­aði til þess að gera mig að betri mann­eskju og körfu­bolta­manni. Þá vil ég líka nefna Inga og Friðrik Inga, en þeir hafa líka reynst mér vel og tekið þátt í því að móta mig sem körfu­bolta­mann.“

Jón Arnór er bjart­sýnn fyrir hönd körfu­bolt­ans á Íslandi. „Framtíð körfu­bolt­ans er von­andi björt. Við eigum langt í land, en það eru strákar sem eru að koma upp núna með miklum látum, sem eiga mögu­leika á að ná langt ef þeir halda rétt á spöð­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár