Umhverfisráðherra ekki fylgjandi náttúrupassa í óbreyttri mynd

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, er ekki fylgj­andi núver­andi útfærslu á nátt­úrupassa Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Í sam­tali við Helga Seljan í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun sagði nýskip­aður umhverfis- og auð­linda­ráð­herra: „Ég er ekk­ert alveg fylgj­andi nákvæm­lega eins og ráð­herra vill taka gjaldið, en mér finnst bara spenn­andi að sjá hvað kemur út úr þessu núna í þing­inu.“

Frumvarp iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra um nátt­úrupassa bíður umfjöll­unar á Alþingi. Sigrún telur þjóð­ina sam­mála um nauð­syn þess að styrkja inn­viði ferða­þjón­ust­unnar og mik­il­vægi þess að komið verði á fót sér­stökum sjóði til að fjár­magna upp­bygg­ingu og varð­veislu ferða­manna­staða á Íslandi. Þjóðin sé hlynnt því að gjald verði tekið af ferða­mönnum, en deilt sé um hvernig að því skuli staðið. „Og það er sama með Nátt­úrupass­ann eins og svo margt annað sem snertir þetta ráðu­neyti sem ég var að taka við, mik­il­væg­ast af öllu er að ná sátt meðal þjóð­ar­innar meðal fólks með ólík sjón­ar­mið um nýt­ingu nátt­úr­unnar, og eins held ég að það sé með Nátt­úrupass­ann að við þurfum að ná sátt um hvernig við getum tekið þetta gjald.“

Sigrúnu, sem jafn­framt er for­maður Þing­valla­nefndar, líst illa á að komið verði upp gjald­skýlum eða hliðum á ferða­manna­stöðum til að hafa eft­ir­lit með gjald­tök­unni. „Mér hugn­ast mjög illa að það sé gjald­taka á hverjum stað, hlið eða að maður þurfi að vera með spjald til þess að fara inn. Ég er ekki full­kom­lega sátt við það, og vil fá að heyra fleiri skoð­anir og umræður um málið. Ég er eig­in­lega alveg sann­færð um að við finnum á þessu góða lausn,“ sagði nýskip­aður umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár