Karolina Fund: 21. aldar rómantískt ljóðskáld

Ingi­björg Elsa Björns­dóttir stendur fyrir söfnun fyrir útgáfu ljóða­bók­ar­innar Ópus fyrir ömmu á Karolina Fund. Bókin er róm­an­tísk ljóða­bók og er til­einkuð ömmu Ingi­bjargar.

Segðu okkur frá verk­efn­inu þínu Ópus fyrir ömmu. Hvað drífur þig áfram til þess að skrifa og hvenær fórstu að skrifa ljóð?

„Ópus fyrir ömmu er róm­an­tísk ljóða­bók sem brýst út úr póst­módern­isma og póst­húman­isma inn í 21. aldar róm­an­tík. Ég er orðin leið á póst­módern­isma, tel póst­húman­isma hrein­lega ekki ganga upp og tel þessi fræði öll vera komin í fræði­legt og and­legt öng­stræti. Því er leitað til róm­an­tísku stefn­unnar um inn­blástur og nýtt upp­haf.

Það er eitt­hvað innan í mér sjálfri, ein­hver skondin sköp­unar- og tján­ing­ar­þörf sem krefst þess að ég skrifi ljóð. Ég skrifa reyndar líka smá­sögur, en ég mun aldrei skrifa skáld­sögu. Ég er meist­ari hins knappa forms.

Ég fæ oft inn­blástur úr tón­list þegar ég skrifa. Þá fer flæðið af stað og ég kemst í gír. Mína fyrri ljóða­bók, Rökk­ur­sónöt­una, skrif­aði ég á þremur dögum sam­fleytt, af því að ég var hrædd um að missa inn­blást­ur­inn. Ég skrif­aði hana á þremur dögum en hafði hugsað í 40 ár.

Tékk­neska tón­skáldið Janacek hóf ekki að semja tón­verk fyrr en seint á lífs­leið­inni. Hann er mín fyr­ir­mynd. Ég byrj­aði ekki að skrifa að ráði fyrr en upp úr fer­tugu. Ég var svo lengi að ná fullum þroska. Núna er ég farin að leika mér að formi og tungu­mál­inu og ég skrifa til­brigði við form og leik mér að orðum og formum. Ljóð mín eru ekki form­laus, þau hafa ákveðna hrynj­andi og ákveðna bygg­ingu.

Ég fór að skrifa ljóð sem barn, en þau urðu ekki góð fyrr en um fer­tugt. Móðir mín segir að ég hafi á barns­aldri staðið út á svölum í Breið­holt­inu og farið með frum­sam­inn ljóða­bálk til sól­ar­innar sem var að setj­ast yfir Selja­hverfið. Mér er því algjör­lega nauð­syn­legt að tjá mig bæði í ljóðum og smá­sögum. Smásögur hef ég mikið skrifað á Rit­hringnum og hefur Rit­hring­ur­inn hjálpað mér mikið."

Ópus merkir verk


Nafnið Ópus fyrir ömmu. Hvaðan kemur það?

„Ópus merkir verk. Langamma mín Ingi­björg Brynj­ólfs­dóttir, dóttir Brynj­ólfs Jóns­sonar sem var prestur að Ofan­leiti í Vest­manna­eyjum, er mér mjög hug­stæð per­sóna. Hún gift­ist langafa mínum Magnúsi Bjarn­ar­syni, presti og pró­fasti á Prest­bakka á Síðu í Vestur-Skafta­fells­sýslu. Þannig flutti hún frá Vest­manna­eyjum upp á land að Prest­bakka. Hún var sterkur karakter, hafði góða kímni­gáfu og hefur verið mjög skemmti­leg og lif­andi mann­eskja. Bókin er skrifuð henni til heið­urs."

[caption id="attachment_15850" align="alignnone" width="1024"] Ingi­björg Elsa Björns­dóttir , höf­undur Ópus fyrir ömmu.[/caption]

Hvert er svo fram­haldið? Stefnir þú á að gefa út fleiri bækur?

„Ég er í dokt­ors­námi og hef verið að grufla í þýð­ingum og skriftum með nám­inu. Ég ætla mér að verða doktor í tækni­legri lýsandi þýð­inga­fræði og verða algjör sér­fræð­ingur í vél­þýð­ingum og sjálf­virkum þýð­inga­kerfum.

Það er ágætt að skrifa ljóð með slíku. Ég verð að vísu að passa að láta ekki stíl­inn úr þýð­ing­unum og þýð­inga­vél­unum smit­ast yfir í ljóðin, þ.e. tækni­legu þýð­inga­text­arnir eru mjög skýrslu­kenndir á köflum og ég vil helst ekki skrifa ljóð sem eru eins og skýrslur.

Hug­mynda­fræði­lega legg ég áherslu á end­ur­reisn róm­an­tík­ur­innar, upp­hafn­ingu sjálfs­ins, hið háleita, hrika­lega og fagra, og snilli­gáf­una í sjálfri mér. Einnig leyfi ég mér að trúa á æðri mátt. Fyr­ir­myndir mínar eru t.d. Blake, Wordsworth, Tennyson en svo verð ég að við­ur­kenna að ég er haldin taum­lausri aðdáun á T.S. Eliot.

Ég mun örugg­lega halda áfram að skrifa á meðan ég lifi. Ég verð fimm­tug eftir eitt ár, þannig að ég verð að vera afkasta­mikil og nýta tím­ann vel ef ég ætla að skilja eitt­hvað eftir mig í þessu lífi. Þegar ald­ur­inn fær­ist yfir fer maður að skilja hve tím­inn er verð­mætur og hversu mikil sóun er að eyða honum í vit­leysu."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár