Pæling dagsins: 2015 verði ár litlu fyrirtækjanna

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Árið 2015 verður von­andi ár litlu og með­al­stóru fyr­ir­tækj­anna. Hjá þeim slær mik­il­væg­asti slag­kraft­ur­inn í hjarta­vöðva hag­kerf­is­ins. Á bil­inu 70 til 80 pró­sent starfs­fólks vinnur hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum. Samt erum við sem erum í stétt fjöl­miðla­fólks ekki nægi­lega dug­leg við að fjalla um þessi fyr­ir­tæki og hvað þau eru að fást við. Við hjá Kjarn­anum höfum reyndar borið okkur sér­stak­lega eftir því að gera slíkt, og hafa við­brögðin við því verið bæði mikil og góð. Milli áranna 2012 og 2013 fjölg­aði starfs­mönnum lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja (með allt að 250 starfs­menn) um 1.400. Það er um þrjú pró­sent fjölgun. Það er gott og blessað, en betra væri ef þessi vöxtur væri meiri, satt best að segja. Mik­il­vægt er fyrir hag­kerfið að þessi fyr­ir­tæki nái vopnum sínum, heilt á litið, og skapi fleiri störf. Stærstu fyr­ir­tækin búa mörg hver við annan veru­leika. Svo muna lands­menn líka eftir því enn, að þegar stærstu fyr­ir­tækin lenda í vand­ræðum, þá er stundum farið ofan í vasa skatt­greið­enda til þess að bjarga þeim. Það á ekki við um litlu fyr­ir­tækin. Það er engin rík­is­á­byrgð á bak við þann rekstur...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár