Pæling dagsins: Hið séríslenska trekkir ferðamenn að

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Nýtt ár gekk í garð með spreng­ingum og látum. Það er ekk­ert nýtt, en þó eru alltaf þús­undir manna hér á landi sem upp­lifa ára­mótin íslensku í fyrsta skipti. Fyrir þeim er þetta nýtt og spenn­andi. Erlendir ferða­menn hafa fyllt hótel á höf­uð­borg­ar­svæð­inu yfir ára­mótin und­an­farin ár, og það var engin und­an­tekn­ing á því í þetta skiptið. Þessi siður, að kveðja árið með jafn miklum spren­ingum og raun ber vitni, er svo til alveg sér­ís­lenskur og það er magnað að sjá hvað erlendum ferða­mönnum þykir þetta til­komu­mikil flug­elda­sýn­ing. Þeir gapa upp í loftið, furðu lostnir! Það er vel hægt að hugsa sér að margar íslenskar venjur séu stór­merki­legar í huga erlendra ferða­manna. Kannski finnst þeim þorra­blótin alveg magnað og ein­stakt fyr­ir­bæri. Kannski væri hægt að draga hingað til lands ferða­menn yfir vetr­ar­tím­ann til þess að upp­lifa sanna íslenska matar- og skemmti­há­tíð? Eða kannski er það full­mikil bjart­sýni...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár