Jón Bjarki og Jóhann Páll gagnrýna Eggert Skúlason harðlega

Blaða­menn­irnir Jón Bjarki Magn­ús­son og Jóhann Páll Jóhanns­son, sem starfað hafa á DV og unnu blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrir umfjöllun um leka­málið, gagn­rýndu ráðn­ingu Eggerts Skúla­sonar harð­lega í við­tali við Kastljós í kvöld.

Þeir gagn­rýndu einnig þau eig­enda­skipti sem átt hafa sér stað og segja ljóst að DV muni breyt­ast. „ DV á morgun verður ekki það sama DV og við höfum starfað fyrir," sagði Jón Bjarki. Þá sögðu þeir frá því að grín­ast hafi verið með það að á rit­stjórn DV að Eggert Skúlason yrði rit­stjóri, vegna þess að það væri svo frá­leitt.

Þeir gagn­rýndu einnig að Hörður Ægisson, sem var blaða­maður á Morg­un­blað­inu, hafi verið ráð­inn við­skipta­rit­stjóri DV fram yfir Inga Freyr Vil­hjálms­son, rit­stjórn­ar­full­trúa.

Tilkynnt var um það fyrr í dag að þrír nýir rit­stjórar hafi verið ráðnir á DV. Þeir eru Eggert Skúlason, Kolbrún Berg­þórs­dóttir og Hörður Ægisson, sem verður við­skipta­rit­stjóri.

Eggert Skúlason starf­aði á árum áður við fjöl­miðlun, meðal ann­ars á Stöð 2. Und­an­farin ár hefur hann rekið eigið almanna­tengsla­fyr­ir­tæki og meðal ann­ars starfað fyrir kröfu­hafa föllnu bank­ana. Fyr­ir­tæki Eggerts. Franca ehf.,var líka ráðið til að gera úttekt á DV eftir að nýir eig­endur tóku við fjöl­miðl­inum í haust. Starfs­menn DV sendu í kjöl­farið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir sögðu úttekt­ina illa unna og að hún virt­ist að mestu byggja á skoð­unum úttekt­ar­höf­unda sjálfra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár