Sigrún Magnúsdóttir verður umhverfis- og auðlindarráðherra

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkti í dag til­lögu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, um að Sigrún Magn­ús­dóttir taki við emb­ætti umhverfis- og auð­lind­ar­ráð­herra. Þetta var stað­fest í frétta­til­kynn­ingu sem barst frá aðstoð­ar­manni for­sæt­is­rá­herra rétt í þessu. Þar er haft eftir Sigrúnu að umhverfis- og auð­lind­ar­mál séu henni „hug­leikin og ég hlakka til að takast á við þau verk­efni sem bíða. Í mínum huga eru umhverf­is­málin mik­il­væg fyrir fram­tíð lands og þjóðar, sér í lagi er varðar gróð­ur­ríki lands­ins og sjálf­bæra nýt­ingu líf­ríkis hafs.“

Sig­mundur Davíð segir Sigrúnu vera reynslu­miklan, far­sælan og heil­steyptan stjór­mála­mann sem njóti trausts. „Sjón­ar­mið og reynsla hennar vega þungt. Það verður mik­ill fengur í því að fá Sigrúnu Magn­ús­dóttur til liðs við rík­is­stjórn­ina."

Sigrún er þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins Hún er þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður og var kjörin ný á þing í síð­ustu kosn­ingum. Hún er auk þess elsti þing­maður þjóð­ar­innar, en Sigrún varð sjö­tug síð­ast­liðið sumar.

Hún sat í borg­ar­stjórn Reykja­víkur í 16 ár, m.a. sem for­maður borg­ar­ráðs í 6 ár og for­maður borg­ar­stjórn­ar­hóps Reykja­vík­ur­list­ans frá 1994 til 2002. Hún hefur setið í stjórnum margra fyr­ir­tækja og stofn­ana borg­ar­innar og leitt mik­il­væg verk­efni, t.d. á sviði mennta- og fræðslu­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár