Hörður Ægisson og Kolbrún Bergþórsdóttir búin að ráða sig á DV

Hörður Ægisson, sem starfað hefur sem við­skipta­blaða­maður á Morg­un­blað­inu um ára­bil, hefur ráðið sig til sam­ein­aðs félags DV og Pressunnar. Ekki hefur feng­ist stað­fest hvaða starfi Hörður mun gegna. Fyrr í dag var greint frá því á vef RÚV að Kolbrún Berg­þórs­dóttir, sem var síð­ast blaða­maður á Morg­un­blað­inu, muni verða á meðal rit­stjóra DV og að hún hefji störf á mánu­dag. Von er á til­kynn­ingu um breyt­ing­arnar innan skamms.

[caption id="attachment_15645" align="align­right" width="300"] Hall­grímur Thor­steins­son.[/caption]

Hall­grímur Thor­steins­son var ráð­inn rit­stjóri DV 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Ráðning hans kom í kjöl­far þess að Reynir Trausta­son lét af störfum eftir harð­vítug átök um yfir­ráð yfir miðl­inum. Í til­kynn­ingu sem þáver­andi stjórn­ar­for­maður DV, Þor­steinn Guðnason, sendi frá sér af þessu til­efni sagði hann: „Við ætlum okkur stóra hluti með DV og dv.is og ráðn­ing reynslu­bolt­ans Hall­gríms Thor­steins­sonar er von­andi fyrsta skrefið af mörgum í þá átt“.

Þann 21. nóv­em­ber var greint frá því að Pressan, félag í meiri­hluta­eigu Björns Inga Hrafns­sonar, hefði keypti um 70 pró­sent hlut í DV ehf. Í frétta­til­kynn­ingu sem Björn Ingi sendi frá sér í kjöl­farið sagði: „Hall­grímur Thor­steins­son verður áfram rit­stjóri blaðs­ins“. Nú, 39 dögum síðar,er Hall­grímur ekki lengur rit­stjóri DV. Björn Ingi tók við sem stjórn­ar­for­maður DV 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár