Ritstjóri DV hættur, nokkrum blaðamönnum sagt upp

Hall­grímur Thor­steins­son er ekki lengur rit­stjóri DV, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Hann mun starfa áfram á vegum Pressunnar og mun leiða stefnu­mótum á sviði tal­málsút­varps. Nokkrum blaða­mönnum DV var líka sagt upp í dag. Heim­ildir Kjarnans herma að á meðal þeirra séu María Lilja Þrast­ar­dóttir og Svein­björn Þórð­ar­son. Upp­sagn­irnar eru hluti af skipu­lags­breyt­ingum sem ráð­ist var í vegna sam­runa DV og Pressunnar. Sá sam­runi kemur í kjöl­far kaupa Pressunnar, sem er í meiri­hluta­eigu Björns Inga Hrafns­sonar, á um 70 pró­sent í DV ehf. Hann er líka stjórn­ar­for­maður og útgef­andi hins sam­ein­aða félags. Á síð­ustu tveimur dögum hefur verið til­kynnt um að lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son og Jón Óttar Ragn­ars­son, sem stofn­aði Stöð 2 á sínum tíma, séu á meðal nýrra fjár­festa í Press­unni. Jón Óttar er mágur Björns Inga.

Ekki hefur náðst í Hallgrím Thor­steins­son, rit­stjóra DV, né Björn Inga Hrafns­son við vinnslu frétt­ar­innar.

RÚV greinir frá því að Kolbrún Berg­þórs­dóttir, fyrrum blaða­maður á Morg­un­blað­inu, verði annar rit­stjóra DV og að hún muni hefja störf á mánu­dag. Ekki hefur verið greint frá því hver hinn verður.

Þetta eru ekki einu upp­sagn­irnar hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum um þessar mundir. Mbl.is greindi frá því í morgun að átta starfs­mönnum 365 miðla hefði verið sagt upp í gær. Fólkið starf­aði allt á sölu-, þjón­ustu- og fjár­mála­sviði.

María Lilja Þrast­ar­dóttir twittaði um brott­rekst­ur­inn fyrr í dag:

Í dag var ég rekin í annað sinn á árinu. Megi 2014 fokka sér dug­lega.

— María Lilja Þrastar (@marialiljath) December 30, 2014

Uppfært klukkan 19:25:

Í upp­haf­legu frétt­inni stóð að Hall­grímur Thor­steins­son hafi verið rek­inn úr starfi. Það er ekki rétt. Hann er hættur sem rit­stjóri DV og mun áfram starfar á vegum Pressunnar og mun leiða stefnu­mótum á sviði tal­málsút­varp. Frétt­inni hefur verið breytt í sam­ræmi við þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár