Pæling dagsins: Stjórnvöld grófu eigin gröf í læknadeilunni

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Enn er allt í hnút í lækna­deil­unni. Læknar vilja strax allt að 20 pró­sent launa­hækkun og einnig kerf­is­breyt­ingar, styrk­ingu á heil­brigð­is­kerf­inu almennt og í það minnsta ein­hvern vott af trú­verð­ugri fram­tíð­ar­sýn frá stjórn­mála­mönnum. Með ólík­indum er að hugsa til þess að það hafi gerst á sama tíma, að læknar fóru í verk­fall, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á heil­brigð­is­þjón­ustu, og að skuldum vaf­inn rík­is­sjóður hafi verið not­aður til þess að upp­fylla hluta af póli­tísku lof­orði ann­ars stjórn­ar­flokks­ins um að lækka höf­uð­stól verð­tryggðra skulda sumra heim­ila, aðal­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Um 80 millj­arðar fóru í þetta, en eins og áður hefur verið minnst á á þessum vett­vangi, hefur Dr. Oddgeir Ottesen, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sýnt fram á það með hag­fræði­legum grein­ingum að þessi nið­ur­fell­ing­ar­að­gerð stjórn­valda er tóm della, sem engum árangri skilar. Mun betra hefði verið að nota féð í annað, t.d. í að lækka skuldir rík­is­sjóðs, eða jafn­vel leysa vanda­málin sem snúa að læknum og heil­brigð­is­kerf­inu. For­vitni­legt verður að sjá hvernig mun ganga að leysa lækna­deil­una á nýju ári, en aug­ljóst er að nið­ur­fell­ing­ar­að­gerð rík­is­stjórn­ar­innar hefur grafið undan samn­ings­stöðu stjórn­valda í þessu mik­il­væga máli...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár