Rannsókn á Sjóvámáli hætt eftir fimm og hálft ár, enginn ákærður

Embætti sér­staks sak­sókn­ara hefur lokið rann­sókn á meintum umboðs­svikum fyrrum stjórn­enda og eig­enda trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvá. Nið­ur­staðan er að eng­inn verður ákærður og málið látið niður falla. Ákvörðun þess efnis var tekin skömmu fyrir jól. Þetta stað­festir Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, við Frétta­blaðið.

Í lbað­inu er haft eftir Þór Sig­fús­syni fyrrum for­stjóra Sjóvá sem hefur verið með stöðu grun­aðs manns í 65 mán­uði, að hann hafi búist við þess­ari nið­ur­stöðu lengi.„Ég hef ekki heyrt í neinum frá emb­ætt­inu í tæp þrjú ár. Það eina sem ég myndi hvetja til er að það verði horft til þess með laga­setn­ingu að svona geti ekki end­ur­tekið sig, að fólk geti verið á sjötta ár til rann­sóknar," sagði Þór.

Sjó­vár­málið snérist meðal ann­ars um lán­veit­ingar úr bóta­sjóði Sjóvár og hvort að stjórn­endur og eig­endur félags­ins hefðu farið út fyrir heim­ildir sínar með þeim lánum. Embætti sér­staks sak­sókn­ara gerði meðal ann­ars hús­leit hjá Þór Sig­fús­syni, Karli Wernerssyni, fyrrum stjórn­ar­for­manni og aðal­eig­anda Milestone, og Guðmundi Ólafs­syni, fyrrum for­stjóra Milestone á árinu 2009. Þeir voru allir yfir­heyrðir og fengu stöðu grun­aðra á meðan yfir­heyrslur stóðu yfir.Auk þess var leitað í höf­uð­stöðvum Milestone, fyrrum eig­anda Sjóvár og í höf­uð­stöðvum trygg­inga­fé­lags­ins.

Ríkið þurfti að koma að Sjóvá á árinu 2009 og trygg­inga­rekstur félags­ins var færður á nýja kenni­tölu haustið 2009. Hann var síðar seldur til nýrra eig­enda. Búist er við því að tap rík­is­ins af afkomu þess að Sjóvá sé um fjórir millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár