Sigurður G. Guðjónsson í hluthafahóp Pressunnar

Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son hefur keypt tíu pró­sent hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Press­unni. Hann kaupir nýtt hlutafé sem var gefið út í til­efni af kaupum Pressunnar á tæp­lega 70 pró­sent hlut í DV ehf. Aðrir eig­endur Pressunnar eru Björn Ingi Hrafns­son, Arnar Ægisson og AB11 ehf. Frá þessu var gengið í dag en kaup­verðið hefur ekki verið gefið upp.

Sigurður G. Guð­jóns­son er ekki ókunnur fjöl­miðla­rekstri. Hann er fyrrum for­stjóri Norð­ur­ljósa, fyr­ir­renn­ara 365, og var á meðal stofn­enda Blaðsins, sem síðar var keypt af Árvakri og var lagt niður í kjöl­far banka­hruns­ins haustið 2008.

Þetta kemur fram á vefnum pressan.is.

Þar er eft­ir­far­andi haft eftir Sigurði: „Mér fannst þetta spenn­andi tæki­færi og ákvað að vera með,“ segir Sigurður. „Ég þekki fjöl­miðla­rekstur á Íslandi mjög vel, var einn stofn­enda Blaðsins á sínum tíma og tel tæki­færi fel­ast í því að setja saman mis­mun­andi fjöl­miðla, nýta mögu­leika í sam­legð og halda um leið sér­kennum hvers um sig.“

Pressan er stræsti hlut­hafi í DV ehf., sem á og rekur DV og dv.is. Félagið á auk þess Vef­press­una sem rekur vef­miðl­ana Pressuna, Eyjuna og Bleikt.

Sigurður G. kom að fyrri átökum


Stjórn­ar­for­maður og útgef­andi Pressunnar er Björn Ingi Hrafns­son. Félagið keypti tæp­lega 70 pró­sent hlut í DV ehf. fyrir skemmstu. Stór hluti kaup­verðs­ins var fjár­magn­aður með láni frá selj­endum hlut­ar­ins. Sá hópur er leiddur af Þor­steini Guðn­a­syni og tók yfir DV í haust eftir harð­vítug átök við Reyni Trausta­son, fyrrum rit­stjóra DV og minni­hluta­eig­anda, og hóp sem honum teng­ist. Átökin end­uðu með að Þor­steinn og við­skipta­fé­lagar hans tóku yfir DV og sögðu Reyni upp störfum. Á meðal þeirra sem komu að þeim átökum fyrir hönd Þor­steins var Sigurður G. Guð­jóns­son, sem nú er orð­inn einn eig­enda Pressunnar.

Sigurður hefur auk þess ítrekað gætt hags­muna aðila sem hafa stefnt DV fyrir frétta­flutn­ing.

Í frétt Pressunnar um hluta­fjár­kaup Sigurðar kemur einnig fram að fleiri hlut­hafar muni bæt­ast við hlut­hafa­hóp fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár