Pæling dagsins: Er ekki hægt að byrja bara á þjóðgörðunum?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Árið 2014 var metár í íslenskri ferða­þjón­ustu, og útlit er fyrir áfram­hald­andi vöxt á kom­andi árum. Vöxt­ur­inn hefur raunar verið ævin­týri lík­astur und­an­far­inn ára­tug. Árið 2003 komu 308 þús­und erlendir ferða­menn til Íslands en árið 2013 voru þeir 781 þús­und, sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu. Loka­talan fyrir árið 2014 verður lík­lega í kringum eina milljón. Mikil umræða hefur verið um gjald­töku við ferða­manna­staði, og hvernig eigi að tryggja fjár­mögnun í nauð­syn­legar inn­viða­fram­kvæmd­ari. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, er sann­færð um að nátt­úrupassi svo­kall­aður sé rétta lausnin. Bréf­rit­ari er ekki svo viss um það, en telur að lyk­ill­inn að árangri í þessu séu að fara sér ekki of hratt í þessa gjald­töku, og ein­angra fyrstu skrefin við raun­hæfa staði. Fyrst það er verið að velja þessa leið, þá koma fyrst og síð­ast þjóð­garð­arnir upp í hug­ann og vin­sælir ferða­manna­staðir innan þeirra. Er ekki hægt að byrja bara á þeim og sleppu öllum hinum stöð­unum?

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár