Pæling dagsins: Neita að horfast í augu við staðreyndir

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, skrif­aði grein á vef Kjarnans í gær þar sem hann lítur um öxl, og leggur mat á stöðu mála. Þetta var að mörgu leyti ágæt grein hjá Sigurði Inga, hóf­stillt og hans per­sónu­lega mat komst ágæt­lega til skila. Síðan getur fólk deilt um það. Bréf­rit­ari er sam­mála Sigurði Inga um það, að mörg jákvæð teikn eru á lofti, en vill meina að þau séu ekki stjórn­mála­mönnum að þakka nema að litlu leyti, heldur helst litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum sem hafa verið að rétta úr kútnum eftir end­ur­skipu­lagn­ingu og erf­ið­leika. Nokkur atriði vöktu bréf­rit­ara til umhugs­unar sem snéru meðal ann­ars að hinni svoköll­uðu leið­rétt­ingu ann­ars vegar og síðan tug­millj­arða vaxta­greiðslum rík­is­sjóðs hins vegar, sem Sigurður Ingi kallar blóð­pen­inga.

Sigurður Ingi er í hópi þeirra sem hefur hundsað tölu­legar stað­reyndir um áhrif hinnar svoköll­uðu leið­rétt­ingar, og hvernig hún fer með 80 millj­arða úr rík­is­sjóði, sem ann­ars hefðu getað farið í lækka skuldir rík­is­sjóðs og minnkað „blóð­pen­inga­greiðsl­urnar“. Oddgeir Ottesen, hag­fræði­doktor og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er búinn að tæta aðgerð­ina niður með tölu­legum stað­reyndum og hag­fræði­legum grein­ingum sem eng­inn hefur getað hrakið, þar sem útkoman er sú að hin svo­kall­aða leið­rétt­ing á verð­tryggðum hús­næð­is­skuldum, sem er það alls ekki, sé glóru­laus aðgerð, og að í henni felist kæru­laus og óábyrgð með­ferð á fé úr rík­is­sjóði. Oddgeir er eng­inn Sam­fylk­ing­ar­maður, eins og blogg­her Fram­sóknar segir alltaf strax um þá sem reyna að ræða mál­efna­lega um þetta. Hann er það alls ekki. Hann er rödd úr Sjálf­stæð­is­flokknum, sem beygði sig fyrir þess­ari umfangs­mestu þjóð­nýt­ingu á einka­skuldum sem dæmi eru um í Íslands­sög­unni á síð­ari tímum. Það er hins vegar hár­rétt hjá Sigurði Inga að taka hraust­lega til orða og kalla tug­millj­arða vaxta­greiðslur rík­is­sjóðs blóð­pen­inga. Einmitt þess vegna er það oft erfitt fyrir stjórn­mála­menn að horfast í augu við það, að það þarf að greiða skuld­irnar niður, þó það sé kannski ekki til skamm­tíma­vin­sælda fallið eins og hin svo­kall­aða leið­rétt­ing.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár