Pæling dagsins: Hugsað til fórnarlambanna

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Tölur yfir fjölda lát­inna í flóð­bylgj­unni sem skall á ströndum Tælands, Indónesíu og eyja­kla­s­ans í næsta nágrenni, á öðrum degi jóla árið 2004, eru enn á reiki. Í gær voru tíu ár frá þessum ótrú­legu og óhugna­legu nátt­úru­ham­förum. Í það minnsta er talið að 200 þús­und manns hafi látið lífið, en einnig hafa verið nefndar tölur upp að allt að 250 þús­und. Ástæðan fyrir þessum mis­mun­andi upp­lýs­ingum er meðal ann­ars ekki nægi­lega áreið­an­legar upp­lýs­ingar um íbúa­fjölda á þessum svæðum þegar þetta gerð­ist. Upp­lýs­inga­söfn­unin er sums staðar ekki nægi­lega skil­virk og vönduð. Það er öllum hollt að hugsa til fólks­ins sem upp­lifði þessar ham­farir á eigin skinni og missti ást­vini sína á þessum tímum. Þvílíkar hörm­ungar. Um eitt þús­und íbúar Norð­ur­landa dóu í flóð­inu, þar af ríf­lega 500 Svíar, sem sýnir hvað þetta var í reynd nærri okkur Íslend­ingum. En hug­ur­inn leitar ekki síst til íbúa á svæð­inu, sem unnu þrek­virki við björg­un­ar­starf áður en alþjóð­leg hjálp barst á svæðið, og síðan einnig í sam­starfi við alþjóð­leg björg­un­ar­lið marga mán­uði eftir flóðin.

https://www.youtube.com/watch?v=ikq0P7U0x4Q

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár