Salan á Datamarket viðskipti ársins, salan á Borgun þau verstu

Salan á Data­mar­ket til Qlik Technologies í Banda­ríkj­unum, sem fór fram í októ­ber síð­ast­liðnum, hefur verið valin við­skipti árs­ins hjá Mark­aðnum, fylgi­blaði Frétta­blaðs­ins um við­skipti, með yfir­burðum. Þetta kemur fram í blað­inu í dag.

Kaup­verðið sem greitt var fyrir Data­mar­ket getur orðið allt að 13,5 millj­ónir dala, um 1.660 millj­ónir króna. Hjálmar Gíslason, sem stofn­aði Data­mar­ket árið 2008 og er fram­kvæmda­stjóri þess, átti 27 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu og fékk í sinn hlut allt að 450 millj­ónir króna. Hjálmar var einnig val­inn við­skipta­maður árs­ins af dóm­nefnd Mark­að­ar­ins.

Hjálmar leiddi hóp fjár­festa sem keyptu hlut í Kjarn­anum í októ­ber síð­ast­liðnum og er stjórn­ar­for­maður félags­ins.

Í öðru sæti yfir við­skipta árs­ins var sala Hagamels, félags í eigu fjár­fest­anna Árna Hauks­sonar, Hall­björns Karls­sonar og Sigur­björns Þor­kels­sonar, á 6,6 pró­senta hlut í smá­söluris­anum Högum. Með söl­unni inn­leystu þeir um 2,3 millj­arða króna hreinan hagnað á fjár­fest­ingu sinni í félag­inu, en þeir höfðu lagt í hana tæpum þremur árum áður. Um var að ræða mesta hagnað sem einka­fjár­festir hefur inn­leyst frá hruni vegna hluta­bréfa­við­skipta.

[caption id="attachment_14919" align="alignnone" width="1024"] Hagar, sem Haga­melur seldu hlut sinn í með miklum hagn­aði, á og rekur meðal ann­ars Bónus-versl­an­irnar.[/caption]

Í þriðja sæti voru samn­ingar sem náð­ust í byrjun des­em­ber um að veita slita­búi gamla Lands­bank­ans (LBI hf.) und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að greiða for­gangs­kröfum sínum í kjöl­far sam­komu­lags sem slita­búið gerði við nýja Lands­bank­ann um breytta skil­mála skulda­bréfa þeirra á milli. Þetta sam­komu­lag var talið flýta fyrir afnámi gjald­eyr­is­hafta. Sam­komu­lagið felur í sér breyt­ingar á greiðslu­ferli skulda­bréfa að jafn­virði 226 millj­arða króna og leng­ingu þeirra frá októ­ber 2018 til októ­ber 2026.

[caption id="attachment_10261" align="alignnone" width="631"] Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Seðla­bank­inn sam­þykkti í des­em­ber að veita slita­búi Lands­bank­ans und­an­þágu frá fjár­magns­höftum.[/caption]

Fnykurinn af Borgun mesti afleikurinn


Verstu við­skipti árs­ins að mati dóm­nefndar Mark­að­ar­ins voru sala Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun. Álits­gjöfum fannst fnýkur af þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt var við söl­una, en hóp­ur­inn sem keypti var sá eini sem fékk að bjóða. Auk þess eru margir á þeirri skoðun að verðið sem greitt hafi verið fyrir hafi verið allt of lágt. Kjarninn greindi fyrstur frá því hvernig var staðið að söl­unni á hlut Lands­bank­ans í Borgun og hverjir það voru sem keyptu hlut­inn.

Í öðru sæti yfir verstu við­skiptin voru sjón­varps­stöðvar Kon­ung­lega kvik­mynda­fé­lags­ins, sem Sigmar Vil­hjálms­son leiddi. Þær fóru í loftið í mars en öllu starfs­fólki var sagt upp í lok apríl. 365 tók loks yfir stöðv­arnar og lagði aðra þeirra, Mikla­garð, niður.

[caption id="attachment_15434" align="alignnone" width="624"] Sigmar Vil­hjálms­son fór fyrir Kon­ung­lega kvik­mynda­fé­lag­inu í skamm­lífu ævin­týri þess.[/caption]

Í þriðja sæti var skulda­leið­rétt­ing rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. All­margir dóm­nefnd­ar­menn sögðu hana hafa verið afleik þar sem miklar fjár­hæðir hefðu að stórum hluta runnið til fólks sem þurfti ekki á þeim að halda. Millj­örð­unum 80 hefði verið betur varið í að lækka skuldir eða renna styrk­ari stoðum undir heil­brigðis- og mennta­kerfi lands­ins.

[caption id="attachment_11791" align="alignnone" width="1024"] Leið­rétt­ingin, skulda­nið­ur­fell­ing rík­is­stjórn­ar­innar á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum, kostar rík­is­sjóð um 80 millj­arða króna.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár