Leiðréttingin dýr en árangursrýr leið til að efna pólitískt loforð

Þeir sem urðu fyrir mestu tjóni vegna verð­tryggðra hús­næð­is­lána sinna fá lítið eða ekk­ert úr verð­trygg­ing­unni. Aðrir, sem keyptu fyrstu fast­eign fyrir lok árs 2004, hafa ekki orðið fyrir þvi að skuldir þeirra hækka að raun­virði en fá samt miklar tjóns­bætur frá hinu opin­bera. Leið­rétt­ing­ar­að­gerð rík­is­stjórn­ar­innar er því mjög ómark­viss þótt enn sé óljóst hversu mikið af þeim 80 millj­örðum króna sem greiddir verði út fari til spillis, enda hafi aðgerðin verið sam­þykkt án þess að fyrir lægi nema að litlu leyti hvernig hún myndi nýt­ast.

Þetta kemur fram í grein eftir Gylfa Magnússon, lektor í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, sem birt­ist fyrr í dag á Kjarn­anum um þá aðgerð stjórn­valda að lækka höf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­lána um 80 millj­arða króna.

[quote font="0" align="right"]Það hefði jafn­vel verið hægt að kaupa heilu skips­farmana af vél­byssum fyrir lög­regl­una ef út í það er farið. Nú eða reisa tvær Hörpur í Skaga­firði. Listinn er nán­ast enda­laus[/quote]

Í grein­inni segir Gylfi enn­fremur að ýmis­legt annað sé hægt að gera fyrir 80 millj­arða króna en að nota þá í svona aðgerð. Til dæmis byggja nýjan Lands­spít­ala, bæta mennta­kerfið, vega­kerfið, bæta mjög hag þeirra verst settu í sam­fé­lag­inu, lækka skatta eða lækka skuldir hins opin­bera. „Það hefði jafn­vel verið hægt að kaupa heilu skips­farmana af vél­byssum fyrir lög­regl­una ef út í það er farið. Nú eða reisa tvær Hörpur í Skaga­firði. Listinn er nán­ast enda­laus“.

Lýðræðið versta stjórnarfarið, fyrir utan öll hin


Það hafi hins vegar verið póli­tísk ákvörðun að eyða þessu fé með þeim hætti sem var gert og því hafi sú ákvörðun ekki þurft að koma á óvart. Hún hafi í raun verið óum­flýj­an­leg í ljósi þeirra lof­orða sem gefin voru í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Ljósið í myrkr­inu er að upp­hæðin sem varið var í skulda­leið­rétt­ingar hafi ein­ungis verið brot af því sem upp­haf­lega var gefið í skyn. „Í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi er auð­vitað skrýtið að skamma stjórn­mála­menn þegar þeir hrinda því í fram­kvæmd sem þeir hafa fengið umboð kjós­enda til að gera, eins og í þessu til­felli. Þá er í raun við kjós­end­urna sjálfa að sakast, eða a.m.k. þann hluta þeirra sem veitti slíkt umboð.

[quote font="0" align="right"]90% íbúða­lánin voru skýrt kosn­inga­lof­orð sem var efnt. Það er dæmi um grá­glettni örlag­anna að nú skuli þeir sem tóku þau fá hluta skuld­anna nið­ur­felldan vegna ann­ars kosn­inga­lof­orðs.[/quote]

Það sama átti auð­vitað við í bólunni sem leiddi til hruns­ins. Rík­is­stjórnir þess tíma höfðu nokkuð skýrt lýð­ræð­is­legt umboð til að þenja út fjár­mála­kerfið, veikja reglu­verkið og taka ýmsar aðrar ákvarð­anir sem kyntu undir brjál­æð­inu. Enda gerðu þær það. 90% íbúða­lánin voru skýrt kosn­inga­lof­orð sem var efnt. Það er dæmi um grá­glettni örlag­anna að nú skuli þeir sem tóku þau fá hluta skuld­anna nið­ur­felldan vegna ann­ars kosn­inga­lof­orðs.

Kannski stað­festir þetta bara að Winston Churchill hafði rétt fyrir sér þegar hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að lýð­ræði væri versta hugs­an­lega stjórn­ar­farið – að und­an­skyldum öllum öðrum sem reynd hafa verið.“

Grein Gylfa er hægt að lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár