Saknar áherslu á kennaramenntun í Hvítbók Illuga

„Áherslur svo­nefndrar Hvít­bókar á lestur, starfs­nám og stytt­ingu náms­tíma eru góðar og gildar þótt áherslu á kenn­ara­menntun sé saknað.“ Þetta segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­stöðu­kona mennt­unar- og nýsköp­un­ar­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra, í ítar­legri grein um mennta­mál og stöðu þeirra í íslensku sam­fé­lagi í árs­lok. Í grein sinni fer Þor­gerður vítt og breitt yfir sviðið þegar kemur að skóla­starfi, og segir meðal ann­ars að nauð­syn­legt sé að huga betur að lestri og og lestr­ar­kennslu. „Lest­ur­inn er lyk­il­at­riði og ber að taka föstum tökum strax í leik­skóla. Þetta er ekki ein­göngu sett fram út frá róm­an­tískri sýn þar sem barn les bók sér til ynd­is­auka heldur er ljóst að ef ýtt er undir lestr­ar­hæfni strax frá byrjun er mun lík­legra að við­kom­andi ein­stak­lingur finni hæfi­leikum sínum far­veg innan skóla­kerf­is­ins og komi þaðan með sterk­ari bak­grunn og sjálfs­mynd en ella. Það minnkar líkur á brott­hvarfi síðar meir,“ segir Þor­gerður Katrín í grein sinni.

Hún segir það enn fremur vera umhugs­un­ar­efni hvort það hafi tek­ist nægi­lega vel til á und­an­förnum ára­tugum við upp­bygg­ingu skóla­kerfis í land­inu. „Einnig má spyrja hvort kjara­bar­átta kenn­ara síð­ustu ára og ára­tuga hafi skilað vel laun­uðum kenn­urum, hvort ríki og sveit­ar­stjórnir hafi barist nægi­lega fyrir sveigj­an­legu, fjöl­breyttu og sam­keppn­is­hæfu skóla­kerfi og hvort atvinnu­lífið hafi ýtt mark­visst á slíkar breyt­ingar?,“ segir Þor­gerður Katrín.

Grein Þor­gerðar má lesa í heild sinni á vef Kjarnans, en hún er hluti af ítar­legri pistla­röð Kjarnans þar sem árið 2014 er gert upp og kafað ofan í stærstu og mik­il­væg­ustu mál árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár