Pæling dagsins: Ekki sjálfsagt að Íslendingar séu bókaþjóð

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Um jól gefst gott tæki­færi til þess að horfa yfir far­inn veg og njóta þess sem jóla­há­tíðin hefur upp á að bjóða. Það er ekki síst gert með því að lesa góða bók eða bækur. Það er einkar ánægju­legt hvað við Íslend­ingar erum mikil bóka­þjóð og hversu sterk tengsl eru milli bóka og jóla. Bækur eru ómissandi þáttur af jóla­haldi næstum allra fjöl­skyldna í land­inu. Bóka­út­gáfan í land­inu er ein­stak­lega metn­að­ar­full og fjöl­breytt, og getur fólk á öllum aldri fundið eitt­hvað við sitt hæfi. Vonandi tekst að við­halda þessum mikla metn­aði til langrar fram­tíðar, en það er ekki aug­ljóst að svo verði.Rann­sóknir hafa sýnt að börn lesi ekki nægi­lega mikið sér til gagns, einkum strákar. Líklega eru fá upp­eld­is­ráð betri en að hvetja börn til þess að lesa, og kveikja um leið hjá þeim áhuga á bókum og bóka­skrifum. Jólin eru til­val­inn tími til þess að skerpa á þessum mik­il­vægu atriðum. Svo­leiðis er nú það...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár