Fjórir forsætisráðherrar fengu ekki fálkaorðu, Jóhanna sagði nei takk

Allir for­sæt­is­ráð­herrar lýð­veld­is­sög­unnar hafa verið sæmdir fálka­orðu, nema fjórir. Þeir eru Hermann Jónasson, Benedikt Gröndal, Stein­grímur Her­mann­son og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, sem hafn­aði því að fá stór­kross þegar hún sat sem for­sæt­is­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili.

Greint var frá því í morgun að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefði verið sæmdur stór­krossi hinnar íslensku fálka­orðu þann 13. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Ekki hefur verið greint frá veit­ing­unni ann­ars­staðar en á und­ir­síðu nefndar sem veitir fálka­orð­una á heima­síðu emb­ættis for­seta Íslands.

Sex manns sitja í orðu­nefnd fálka­orð­unnar. Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er for­maður nefnd­ar­innar.

Fjórir hafa ekki fengið


Orðustig Hinnar íslensku fálka­orðu eru fimm tals­ins. Fyrsta stig orð­unnar er ridd­ara­kross­inn og eru flestir orðu­þegar sæmdir honum. Annað stig er stór­ridd­ara­kross, þriðja stig stór­ridd­ara­kross með stjörnu og fjórða stig er stór­kross. Æðsta stig fálka­orð­unnar er keðja ásamt stór­kross­stjörnu en hana bera ein­ungis þjóð­höfð­ingjar.

Flestir íslenskir for­sæt­is­ráð­herrar hafa verið sæmdir stór­krossi, sem er æðsta stig hennar sem aðrir en þjóð­höfð­ingjar geta borið. Eftir leit í gagna­grunni heima­síðu Forseta Íslands komst Kjarninn að því að ein­ungis fjórir for­sæt­is­ráð­herrar hafa ekki fengið fálka­orðu. Þeir eru feðgarnir Hermann Jónasson (for­sæt­is­ráð­herra frá 1956-1958), Benedikt Gröndal (for­sæt­is­ráð­herra frá októ­ber 1979 til febr­úar 1980), Stein­grímur Her­manns­son (for­sæt­is­ráð­herra 1983-1987 og 1988-1991) og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir (for­sæt­is­ráð­herra frá 2009-2013).

Jóhanna var til­nefnd til orðu­veit­ingar en hún hafn­aði því að taka við henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár