Hagkerfi Bandaríkjanna óx um 5 prósent - Obama gleðst

Hagkerfi Banda­ríkj­anna óx um fimm pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Þessar tölur eru heldur betri en spár flestra sér­fræð­inga á mark­aði gerðu ráð fyrir, og þykja sýna að banda­ríska hag­kerfið er í sókn um þessar mundir.

Lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu á und­an­förnum mán­uðum hefur haft jákvæð áhrif á banda­ríska hag­kerfið, á heild­ina litið. Þessi hag­vöxtur milli ára er sá hrað­asti og mesti sem mælst hefur í ell­efu ár í Banda­ríkj­unum, að því er breska rík­is­út­varpið BBC greindi frá.

Eft­ir­spurn á smá­sölu­mark­aði hefur verið að aukast hratt að und­an­förnu í Banda­ríkj­unum og mæld­ist 3,2 pró­sent vöxtur milli ára, á þriðja árs­fjórð­ungi.

Þessar hag­tölur þykja vera góðar fréttir fyrir rík­is­stjórn Baracks Obama, Banda­ríkja­for­seta, og til marks um að aðgerðir sem rík­is­stjórnin greip til, ásamt Seðla­banka Banda­ríkj­ann, til þess að örva hag­vöxt, hafi heppn­ast vel.

Obama fagn­aði þessum tölum á Twitter aðgangi sínum, sem er sá þriðji vin­sæl­asti í heim­inum með um 52 millj­ónir fylgj­enda um allan heim.

In the third quarter, the U.S. economy grew at its strongest rate in over a decade. Read more: http://t.co/RvRppypYH2

— Barack Obama (@BarackObama) December 23, 2014

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár