„Sprengidagur“ í matvöruverslun í dag - margir á síðustu stundu

„Síðustu tveir dag­arnir fyrir jól eru alltaf mjög miklir versl­un­ar­dagar þegar kemur að mat­vöru, en Þor­láks­messa er hálf­gerður „sprengi­dagur“ enda vill fólk kaupa margar vörur sem næst jól­unum, eins og rjóma og fleira,“ segir Finnur Árnason, for­stjóri Haga.

Hann segir jóla­versl­un­ina hjá Högum, sem er lang­sam­lega stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins og rekstr­ar­að­ili Bónus og Hagkaup, hafa gengið vel, en veður hafi sett strik í reikn­ing­inn víða um land. „Veðrið hefur haft sér­stak­lega mikil áhrif á lands­byggð­inni, en á und­an­förnum helgum hefur hitt þannig á, raunar mjög víða um landið, að mikil ófærð hefur verið og leið­inda­veður. Það bitnar á versl­un­ar­ferð­unum, en reynslan sýnir að þær fær­ast þá yfir á aðra daga. Það er alltaf mikið ann­ríki á þessum síð­ustu dögum og mik­ill hama­gangur í versl­unum, en líka mikil og góð stemmn­ing,“ segir Finnur.

Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu, sagði í við­tali við Vísi í dag, að jóla­versl­unin hefði til þessa valdið kaup­mönnum von­brigðum, en reiknað hefði verið með meiri verslun, eða fjögur til fimm pró­sent aukn­ingu milli ára. Allt stefndi í að versl­unin verði svipuð á þessu ári og í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár