Daði Kristjánsson ráðinn framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa

Daði Krist­jáns­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri H.F. Verð­bréfa. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá H.F. Verð­bréfum. Daði hefur starfað hjá fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2010 og sem for­stöðu­maður mark­aðsvið­skipta frá því í sept­em­ber 2012. Hann tekur við stöð­unni um ára­mótin af Andra Guð­munds­syni sem mun starfa áfram sem for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar, en hann sinnti þeirri stöðu áður sam­hliða starfi fram­kvæmda­stjóra. Andri hyggst flytja með fjöl­skyldu sína til Sví­þjóðar á nýju ári.

„Ég er afskap­lega spenntur að takast á við nýtt hlut­verk innan H.F. Verð­bréfa og tek við góðu búi af Andra. Ég hef starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í að verða 5 ár og þekki starf­sem­ina því vel en það verður gott að hafa Andra mér til halds og trausts á meðan ég er að koma mér inn í starf fram­kvæmda­stjóra,“ segir Daði í til­kynn­ingu.

Daði er með B.Sc. gráðu í verk­fræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjár­mála­hag­fræði frá sama skóla. Þá hefur hann lokið prófi í verð­bréfa­við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár