Sigríður Björk: Ekkert tilefni til að efast um umboð Gísla Freys

Sigríður Björg Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæðs­ins, segir í svari til Per­sónu­verndar að hún hafi „ekk­ert til­efni til að álykta, eða ætla, að ann­ar­lega ástæður gæti legið að baki beiðni aðstoð­ar­manns­ins um upp­lýs­ingar“, vegna upp­lýs­inga sem hún veitti Gísla Frey Val­dórs­syni, fyrrum aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra, um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos. Greint er frá svari Sigríðar Bjarkar á mbl.is.

Þar segir að hún hafi afhent Per­sónu­vernd bréf þar sem hún útskýrir sína hlið á því þegar grein­ar­gerð um Tony Omos var send á Gísla Frey. Grein­ar­gerðin var send á Gísla Frey 20. nóv­em­ber 2013, eftir að upp­lýs­ingar um Omos sem aðstoð­ar­mað­ur­inn fyrr­ver­andi lak í fjöl­miðla birt­ust opin­ber­lega.

Í bréf­inu seg­ist Sigríður Björk hafa verið í góðri trú og enga ástæðu til að ætla annað en að Gísli Freyr hafi óskað eftir grein­ar­gerð­inni í umboði Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sem sagði af sér emb­ætti vegna leka Gísla Freys í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Hún seg­ist hafa gengið út frá því að ráðu­neytið teldi grein­ar­gerð­ina nauð­syn­lega til þess að ráð­herra gæti sinnt lög­bundnum skyldum sínum.

Í frétt mbl.is er eft­ir­far­andi brot úr bréfi Sigríðar Bjarkar birt:

„For­stöðu­menn eða starfs­menn und­ir­stofn­ana ráðu­neyt­is hljóta auk þess al­mennt séð að geta gengið að því sem gefnu, a.m.k. þar til hið gagn­stæða kem­ur í ljós, að umboð og heim­ild­ir til þess og að er­indi þeirra eigi sér rétt­mæt­ar og eðli­leg­ar for­send­ur. Þá hljóta for­stöðu­menn og starfs­menn und­ir­stofn­ana að gefa sér, líkt og und­ir­rituð í greint sin, að þeir sem taka við upp­lýs­ing­um fyr­ir hönd ráð­herra og ráðu­neyt­is virði þær regl­ur sem gilda um með­ferð við­kvæmra upp­lýs­inga sem þeir kalla eft­ir og fá starfa sinna vegna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár