Andri hættir sem framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa um áramót

Andri Guð­munds­son mun láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri H.F. Verð­bréfa um ára­mótin. Andri hefur starfað hjá fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2005 og gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra frá því í jan­úar 2011. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá H.F. Verð­bréfum.

„Það hefur verið afar lær­dóms­ríkt að stýra H.F. Verð­bréfum und­an­farin fjögur ár. Þetta hafa verið anna­söm en um leið góð ár í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Nú er aftur á móti komið að tíma­mótum í lífi mínu og fjöl­skyldu minnar þar sem við hyggj­umst flytja út fyrir land­stein­ana, nánar til­tekið til Stokk­hólms. Ég mun áfram gegna starfi for­stöðu­manns fyr­ir­tækja­ráð­gjafar H.F. Verð­bréfa en taldi, í sam­ráði við stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, best að fela nýjum manni fram­kvæmda­stjóra­stöð­una,“ segir Andri í til­kynn­ingu.

Ekki hefur verið til­kynnt um eft­ir­mann Andra í starfi, en gengið verður frá skipan í starfið á næstu dögum.

Eig­in­kona Andra, Brynja Vala Bjarna­dóttir, hefur ráðið sig í stöðu læknis á Danderyd sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi, þar sem hún mun einnig stunda sér­nám í húð­lækn­ingum, að því er segir í til­kynn­ingu. Þau eiga þrjú börn á aldr­inum 1 til 5 ára.

Andri er með B.Sc. gráðu í eðl­is­fræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verð­bréfa­við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár