Matvælastofnun rannsakar aðbúnað hesta sem drápust á Álftanesi

Mat­væla­stofnun hyggst rann­saka aðbúnað tólf hrossa sem drukkn­uðu í Bessa­staða­tjörn, að því er talið er á þriðju­dag­inn þegar mikið óveður gekk yfir Suð­vest­ur­horn lands­ins. Þetta stað­festir Sigríður Björns­dóttir, dýra­læknir hrossa­sjúk­dóma hjá Mat­væla­stofnun í sam­tali við Kjarnan. Hún segir að málið verði rann­sakað heild­stætt með hlið­sjón af reglu­gerð um vel­ferð hrossa.

Hrossin voru á svo­kall­að­ari haust­beit en sjö þeirra voru í eigu Íshesta og fimm í eigu fé­laga í Hesta­manna­fé­lag­inu Sóta. Hrossin fund­ust dauð í Bessa­staða­tjörn í gær, en grunn­semdir vökn­uðu um að ekki væri allt með felldu eftir smölun á laug­ar­dag­inn.

Mat­væla­stofnun hyggst, eins og áður segir, rann­saka hvort aðbún­aður hross­anna hafi upp­fyllt reglu­gerð um vel­ferð hrossa. Í 18. grein reglu­gerð­ar­innar, er fjallar um úti­gang hrossa, segir orð­rétt: „Hross sem ganga úti skulu geta leitað skjóls fyrir veðri og vindum. Þar sem full­nægj­andi nátt­úru­legt skjól, svo sem skjól­belti, klettar og hæðir, eru ekki fyrir hendi skulu hross hafa aðgang að mann­gerðum skjól­veggjum sem mynda skjól úr helstu áttum. Hver skjól­veggur skal að lág­marki vera 2 metrar á hæð og svo langur að öll hross hjarð­ar­innar fái notið skjóls. Skjól­veggir skulu byggðir þannig að þeir valdi ekki slysa­hættu né hræðslu hjá hrossum. Við eft­ir­lit og mat á aðbún­aði hrossa á úti­gangi, svo sem hrossa­skjól, skal litið heild­stætt á þá þætti sem hafa áhrif á vel­ferð hjarð­ar­innar svo sem fóð­ur­á­stand, land­gæði, skjól og veð­ur­far á svæð­inu.“

Í frétt sem birt­ist á frétta­síð­unni mbl.is í gær var haft eftir Einari Þór Jóhanns­syni, umsjón­ar­manni hest­húsa Íshesta, að hann telji lík­legt að slysið hafi átt sér stað í áður­nefndu óveðri á þriðju­dag­inn. Þá hefur vef­mið­ill­inn Vísir orð­rétt eftir Einari Bolla­syni hjá Íshestum: „Það er ekki nema rúm vika síðan menn voru að gá að hest­unum, þar af starfs­maður frá okkur, og allt var í topp­standi. Þannig að þetta hefur gerst ein­hvern síð­ustu daga.“ Samkvæmt áður­nefndri reglu­gerð um vel­ferð hrossa hvað varðar eigið eft­ir­lit, segir að hafa skuli viku­legt eft­ir­lit með hrossum sem ganga úti á beit eða á gjöf. Mat­væla­stofnun hyggst einnig kanna hvort eft­ir­lit með hross­unum á Álfta­nesi hafi upp­fyllt þetta ákvæði.

Mat­væla­stofnun ann­ast eft­ir­lit með fram­kvæmd reglu­gerð­ar­innar um vel­ferð hross og hefur sömu­leiðis eft­ir­lit með að ákvæðum hennar sé fylgt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár