Áforma að byggja 750 nýjar stúdentaíbúðir á næstu fimm árum

Reykja­vík­ur­borg, Félags­stofnun stúd­enta og Háskóli Íslands und­ir­rit­uðu í dag vilja­yf­ir­lýs­ingu um bygg­ingu 650 nýrra stúd­enta­í­búða á háskóla­svæð­inu og í nágrenni við Háskóla Íslands á næstu fimm árum, auk þeirra 100 sem eru að fara í upp­bygg­ingu við Ásholt/Braut­ar­holt. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum í dag.

Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni kemur fram að Háskóli Íslands og Reykja­vík­ur­borg muni vinna að því að skipu­leggja háskóla­svæðið með það að mark­miði að koma þar fyrir allt að 400 stúd­enta­í­búðum til við­bótar við þær sem þegar eru á svæð­inu.

Þá lýsir Reykja­vík­ur­borg yfir vilja sínum til að úthluta lóðum og bygg­ing­ar­rétti fyrir 250 stúd­enta­í­búðir á vegum Félags­stofn­unar stúd­enta á öðrum þétt­ing­ar­reitum nálægt mið­borg­inni og Háskóla Íslands. Er þar m.a. til­tekið að Félags­stofnun stúd­enta muni taka þátt í sam­starfi um bygg­ingu nýrra Reykja­vík­ur­húsa í Vest­ur­bugt og á öðrum reitum sam­kvæmt nán­ara sam­komu­lagi, hvort heldur sem er við Reykja­vík­ur­borg eða í gegnum opin­bera einka­fram­kvæmd.

Við Ásholt/Braut­ar­holt hefur þegar verið úthlutað lóð fyrir um 100 nýjar stúd­enta­í­búðir en fram­kvæmdir munu hefj­ast á nýju ári.

Alls verða því 750 nýjar stúd­enta­í­búðir byggðar í Reykja­vík á næstu fimm árum á vegum Félags­stofn­unar stúd­enta en aðrir aðilar, eins og Háskól­inn í Reykja­vík og Bygg­inga­fé­lag náms­manna, hafa einnig áform um bygg­ingu stúd­enta­í­búða.

Félags­bú­staðir hf. munu sam­kvæmt vilja­yf­ir­lýs­ing­unni hafa kaup­rétt á allt að 5% íbúða sem byggðar verða enda sé um að ræða íbúðir fyrir náms­menn sem stunda nám við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár