Forstjóri Haga: Innkoma Costco gleðitíðindi fyrir neytendur

Finnur Árnason for­stjóri smá­söluris­ans Haga segir það vera „gleði­tíð­indi fyrir neyt­endur“ fari svo að Costco opni verslun hér á landi og hefji þar með að veita Íslend­ingum versl­un­ar­þjón­ustu. Costco hyggst opna stóra verslun, um 14 þús­und fer­metra, við Kauptún í Garðabæ fyrir næstu jól. Fyr­ir­tækið hefur þegar gengið frá kaupum á hús­næð­inu, en áformin hafa verið kynnt bæj­ar­yf­ir­völdum í Garðabæ sem og stjórn­völdum.

Finnur segir að inn­koma Costco á markað hér á landi muni koma með nýja vídd á mark­að­inn, og stór­auka sam­keppni í versl­un­ar­rekstri. „Ég held að Íslend­ingar geri sér ekki allir grein fyrir því hvernig versl­arnir Costco eru. Í þeim er að finn alls konar varn­ing, raf­tæki ekki síst. Þannig að verslun Costco mun hafa mikil áhrif. Ég lít fyrst og fremst á þessi áform, ef þau ganga eftir, sem jákvætt skref fyrir íslenska neyt­endur,“ segir Finnur.

[caption id="attachment_15105" align="alignnone" width="640"] Finnur Árnason, ásamt Páli Harð­ar­syni, for­stjóra Kaup­hallar Íslands.[/caption]

Það er ljóst að íslenski smá­sölu­mark­að­ur­inn er dverg­vax­inn í sam­hengi við heild­ar­um­svif Costco í Banda­ríkj­unum, en vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins á síð­ustu árum hefur verið mik­ill. Árið 2010 voru heild­ar­tekjur sam­steypunnar 77 millj­arða Banda­ríkja­dala, en í fyrra námu þær 105 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur ríf­lega tólf þús­und millj­örðum króna.

Heild­ar­tekjur Haga, sem meðal ann­ars rekur Bónus og Hagkaup, námu ríf­lega 76 millj­örðum króna á síð­asta rekstr­ar­ári félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár