Eygló segir eðilegt að lækka framlög, VIRK eigi ekki að safna fé í sjóði

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir að falli VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður ekki frá þeirri ákvörðun sinni að hafna 200 millj­óna króna fram­lagi rík­is­ins „verði allt kapp lagt á að tryggja fólki þá þjón­ustu sem það þarf hjá VIRK eða eftir öðrum leiðum“. Ráð­herr­ann segir að það sé ekki hlut­verk VIRK að safna pen­ingum í sjóði og telur eðli­legt að lækka fram­lög til stofn­un­ar­innar í ljósi þess að hún á vara­sjóð. Eygló ætlar að óska eftir fundi með stjórn VIRK sem fyrst til að halda áfram við­ræðum um lausn á mál­inu. Þetta kemur fram í frétt á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sem var birt í dag.

Kjarninn greindi frá því á laug­ar­dag að VIRK muni ekki taka við ein­stak­lingum sem standa utan vinnu­mark­aðar, eru á örorku­líf­eyri eða skjól­stæð­ingar félags­mála­stof­ana á árinu 2015 að óbreyttu. Þetta til­kynnti stjórn­ar­for­maður VIRK Eygló bréfleiðis á fimmtu­dag í kjöl­far þess að fjár­lög, sem gera ráð fyrir að fram­lag rík­is­ins til VIRK á næsta ári verði 200 millj­ónir króna, voru sam­þykkt. Samkvæmt lögum og samn­ingum sem hafa verið und­ir­rit­aðir átti fram­lag rík­is­ins til VIRK Að vera 1,1 millj­arðar króna á næsta ári.

VIRK mun því ekki taka við þeim 200 millj­ónum króna sem sjóðnum er skammtað á fjár­lögum. Í bréf­inu segir enn­fremur að nú liggi „fyrir að ríkið mun ekki að standa við sam­komu­lagið og því er VIRK nauð­beygt til að til­kynna starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðv­unum um breyttar for­sendur þjón­ustu­kaupa á næsta ári“. Því muni VIRK „ekki geta tekið ein­stak­linga í þjón­ustu á árinu 2015 sem ekki er greitt iðgjald af í sjóð­inn“.

Ríkið hefur ekki greitt sitt framlag


VIRK er eini starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður lands­ins og sam­kvæmt lögum eiga atvinnu­rek­endur, líf­eyr­is­sjóðir og íslenska ríkið að fjár­magna hann. Sjóð­ur­inn er sjálfs­eign­ar­stofnun en ekki opin­ber stofnun og því getur ríkið ekki tekið ein­hliða ákvörðun um nið­ur­skurð hans.

[quote font="0" align="right"]Sama ár tók VIRK yfir samn­inga vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins við starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðvar um allt land fyrir um 400 millj­ónir króna á ári og hefur því greitt sam­tals 800 millj­ónir króna af útgjöldum á síð­ustu tveimur árum sem ann­ars hefðu lent á rík­inu.[/quote]

Ríkið hefur ekki greitt sitt fram­lag til VIRK hingað til og í fyrra var gert óform­legt sam­komu­lag um að fresta fram­lagi rík­is­ins um eitt ár gegn því að það kæmi inn árið 2015. Sama ár tók VIRK yfir samn­inga vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins við starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðvar um allt land fyrir um 400 millj­ónir króna á ári og hefur því greitt sam­tals 800 millj­ónir króna af útgjöldum á síð­ustu tveimur árum sem ann­ars hefðu lent á rík­inu.

Þegar fjár­lög voru kynnt í haust var ekki gert ráð fyrir neinu fram­lagi til VIRK á árinu 2015 þrátt fyrir að sú upp­hæð hefði átt að vera 1,1 millj­arður króna og að fram­lag rík­is­ins væri bundið í lög. Í kjöl­far mót­mæla stjórnar VIRK við þessu var ákveðið að fram­lagið yrði 200 millj­ónir króna án þess að sér­stakar skýr­ingar væru settar fram um hvernig sú tala væri fundin.

Ekki hlutverk VIRK að safna í sjóð að mati ráðherra


Í bréfi stjórn­ar­for­manns VIRK til félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sem var sent síð­ast­ið­inn fimmtu­dag, kemur fram að við­ræður við ráð­herra og emb­ætt­is­menn hafi einkum verið mætt með „óbil­gjörnum kröfum um mik­inn nið­ur­skurð í starf­sem­inni, þrátt fyrir að hún hafi skilað miklum ávinn­ingi til ein­stak­linga, rík­is­sjóðs, líf­eyr­is­sjóða og sam­fé­lags­ins í heild[...]einkum virð­ist sá vara­sjóður sem byggður hefur verið upp með fram­lögum atvinnu­lífs­ins, og nauð­syn­legur er til að mæta óvissri fram­tíð sjóðs­ins, vera þeim þyrnir í augum.

Vara­sjóð­inn á að nota ef breyt­ingar verða á starf­semi VIRK og vinda þarf ofan af henni. Þá á vara­sjóð­ur­inn að standa undir kostn­aði við þær breyt­ingar.

Í frétt­inni sem birt­ist á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í morgun er haft eftir Eygló Harð­ar­dóttur að það sé „ekki hlut­verk VIRK að safna í sjóð og Alþingi lagði áherslu á þá afstöðu sína þegar lög um starfsendu­hæf­ing­ar­sjóði voru sam­þykkt. Það er ágrein­ingur um fram­lög þeirra þriggja aðila sem eiga að leggja sjóðnum til fé. Ég tel eðli­legt að lækka fram­lögin þannig að ekki verði óeðli­leg sjóðs­söfnum, aðhalds verði gætt í rekstr­inum og að allir aðil­arnir þrír greiði jafnt í sjóð­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár