Eitt blóm fyrir vestan

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Sigurjón Magn­ús­son

Snjór í myrkri

Útgef­andi: Ugla

Krimmar í dul­ar­gerfi eru vin­sælt form þessi jólin. Eða þegar best lætur: skáld­skapur sem nýtir aðferðir eða sögu­efni glæpa­sög­unnar til að segja eitt­hvað mark­vert um sam­fé­lagið og manns­sál­ina, eitt­hvað sem hvílir á höf­und­inum.Nýjasta skáld­saga Sig­ur­jóns Magn­ús­sonar fellur að sumu leyti í þennan flokk. Hún ber reyndar und­ir­tit­il­inn „Skáld­saga“, svona eins og til að taka af tví­mæli um að hún sé a) ekki sann­sögu­leg og b) ekki „bara“ glæpa­saga.

En Snjór í myrkri hverf­ist um glæp og að ein­hverju leyti rann­sókn á orsökum hans og kring­um­stæð­unum sem leiddu til hans.

Þetta er allt saman bæði frekar kunn­ug­legt, en með áhuga­verðum vinkli þó. Rit­höf­und­ur­inn og upp­gjafa­kenn­ar­inn Daníel er í hálf­gerðu ráð­leys­is­á­standi þegar for­leggj­ar­inn hans fær hann til að skrifa ævi­sögu ungrar tón­list­ar­konu frá Flateyri sem fannst myrt nokkru fyrr. Málið er óupp­lýst, en konan tengd­ist rót­tækum bar­áttu­hóp fyrir rétt­indum inn­flytj­enda og afnámi landamæra. Sem kannski og kannski ekki teng­ist aftur örlögum hennar.

Við heim­ilda­öflun Daníels kemur vita­skuld ýmis­legt fram um aðdrag­anda morðs­ins og ýmsa sem gætu hafa átt þar hlut að máli, þó hann sé þannig séð ekki að „rann­saka málið“. Og enn fremur kynn­umst við hinum kulda­lega Daníel og fáum inn­sýn í ein­angrun hans í líf­inu sem að mestu virð­ist vera sjálf­skap­ar­víti.

Vandi bók­ar­innar er að þó hún sé skýr og skrifuð i skemmti­lega kald­hömruðum og fáorðum stíl þá er hún ein­hvern­vegin alltaf að lofa ein­hverju sem aldrei er staðið við og ætlar sér aldrei. Glímu sögu­hetj­unnar við „leynd­ar­dóm­inn“, afhjúpun sann­leik­ans. Mögulega ein­hverri spennu. Glefs­urnar af „krimma­legu“ plotti verða fyrir vikið alveg mun­að­ar­lausar, t.d. und­ar­leg hlið­ar­saga um laga­stuld, sem og lausn gát­unnar sjálfrar.

Og það sem vð fáum í stað­inn er ein­fald­lega ekki nógu áhuga­vert sjálft til að rétt­læta þá ferð sem við fylgjum Daníel í. Sú hlið sög­unnar - veg­ferð Daníels, sam­skipti hans við sam­starfs­fólk, ást­konur og við­mæl­endur, með­höndlun hans á við­fangs­efni sínu og ákvarð­anir hans um hverju hann ljóstrar upp - nær heldur ekki flugi finnst mér. Það virð­ist líka vera Sig­ur­jóni tals­vert kapps­mál að vera knappur, nákvæmur og orð­fár.

Í þess­ari litlu bók, sem varla er mikið meira en nóv­ella þegar ríku­legar spáss­í­urnar eru taldar frá blað­síð­unum 195, leyn­ast tvær merki­legar hálf­sagðar sögur og þvæl­ast hver fyrir ann­ari. Ann­ars­vegar krimmi af nor­rænu gerð­inni, þar sem póli­tík og prí­vatá­stríður stíga sinn dans. Á hinn bóg­inn saga af glímu rit­höf­undar við umhverfi sitt, sam­skipta­hæfi­leika og heið­ar­leika - eða skort á þessu.

Það sem er í bók­inni er fínt. Það er bara varla nóg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár