Þorsteinn Már: Ástandið í Rússlandi ekki ósvipað Íslandi í október 2008

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja, segir að ástandið í Rúss­landi nú sé ekki ósvipað því sem var á Íslandi í októ­ber 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi.Samherji flytur út mjög mikið magn af sjáv­ar­af­urðum á Rúss­lands­markað og landið er mjög mik­il­vægur mark­aður fyrir fyr­ir­tækið. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Íslenskir útflytj­endur eiga mik­illa hags­muna að gæta í Rúss­landi. Tæplega helm­ingur alls mak­ríls sem veiddur eru af íslenskum fyr­ir­tækjum fer til að mynda á markað þar. Íslenskir fi

Frétta­blaðið greindi frá því á mið­viku­dag að rúss­nesk fyr­ir­tæki skuldi íslenskum fisk­út­flytj­endum þrjá til fimm millj­arða króna fyrir upp­sjáv­ar­fisk sem þau hafi fengið, en ekki greitt fyrir.

Þor­steinn að Samherji hafi sent flutn­inga­skip til Rúss­lands fyrir um tíu dögum og að það sé vænt­an­legt í höfn þar í byrjum næstu viku. Aðspurður um hvort hans sé von­góður um að fá greitt fyrir þær vörur segir hann að aðstæður séu erf­iðar.

Gæti leitt til risavaxinnar bankakreppu


Kjarninn greindi frá því á laug­ar­dag að Evgeny Gavri­len­kov, aðal­hag­fræð­ingur fjár­fest­inga­banka­arms rúss­neska bank­ans Sberbank CIB, hefði varað við því að þær aðgerðir sem rúss­nesk stjórn­völd hafa ráð­ist í til að bjarga rúss­neskum bönkum sem eiga í miklum vand­ræðum, gætu leitt til risa­vax­innar banka­kreppu.SberBank CIB er stærsti lán­veit­andi Rúss­lands.

Í frétt á vef Business Insider er haft eftir honum að ef seðla­banki Rúss­lands heldur áfram að end­ur­fjár­magna banka í skiptum fyrir skulda­bréf sem eng­inn mark­aður er fyrir, en bank­arnir geti fram­leitt í nán­ast ótæm­andi magni, þá muni það leiða til banka­kreppu af stærstu gerð.

Þetta er staða sem er Íslend­ingum að nokkru kunnug. Í aðrag­anda banka­hruns­ins sem átti sér stað hér­lendis í októ­ber 2008 dældu íslensku bank­arnir skulda­bréfum gefnum út af sjálfum sér inn í Seðla­banka Íslands í skiptum fyrir lausafé. Þegar þeir voru búnir með kvót­ann þá fengu þeir smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki til að vera milli­göngu­að­ilar gegn þóknun. Þessi svoköll­uðu ást­ar­bréfa­við­skipti end­uðu með ósköpum og því að íslenska ríkið þurfti að taka yfir miklar skuldir Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár