Pæling dagsins: Einkaframtakið áhrifamesta byggðastefnan

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Á und­an­förnum árum hefur Róbert Guð­finns­son, athafna­maður og fjár­festir, staðið fyrir stór­kost­legri upp­bygg­ingu á Siglu­firði, eins og greint hefur verið frá reglu­lega í fjöl­miðlum. Nú er upp­bygg­ing á glæsi­legu hót­eli, Sigló Hótel, í gangi en það er ekki ólík­legt að eitt­hvað annað fylgi fljót­lega á eftir, sé mið tekið af reynslu síð­ustu ára. Þessi jákvæða inn­spýt­ing Róberts og ann­arra sem að þessu koma, dregur athygl­ina að því, hversu sjald­gæft það er að efna­menn geri þetta sama og Róbert hefur gert á Siglu­firði. Það er að nýta pen­ing­ana til upp­bygg­ingar á stöðum á lands­byggð­inni sem hafa verið í mik­illi vörn, og veðja á að upp­bygg­ingin geti átt sér stað á þessum stöðum, og skilað ávöxtun til fram­tíðar litið. Aug­ljós­ast er að horfa til ferða­þjón­ustu í þessum efnum, en það má líka hugsa sér aðra atvinnu­vegi, t.d. upp­lýs­inga­tækni og hönnun. Nokkur góð dæmi eru um vel heppn­aðan rekstur á þessum sviðum á litlum stöðum víða um land, meðal ann­ars hið magn­aða fyr­ir­tæki Dress­up­games á Ísafirði, sem Inga María Guð­munds­dóttir stofn­aði og rekur. Það hefur hagn­ast um meira en 100 millj­ónir á ári, mörg síð­ast­liðin ár og verið á meðal hæstu greið­enda opin­berra gjalda á Vest­fjörðum. Það er lif­andi dæmi um að svo til allt sé hægt. Stundum þarf ekki alltaf að horfa til opin­berra starfa, þegar rætt er um byggða­stefnu. Einka­fram­takið er yfir­leitt langa­sam­lega áhrifa­mest, en til þess að það geti orðið að veru­leika þurfa fjár­festar að horfa meira út fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið og veðja á að góðir hlutir geti gerst.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár