List hins ómögulega

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Jón Ólafsson (rit­stj.)

Lýð­ræð­istil­raunir

Útgef­andi: Háskóla­út­gáfan

Þessum les­anda leið ofur­lítið eins og Pollíönnu við lestur Lýð­ræð­istil­rauna, rit­gerða­safns þar sem félags­vís­inda­menn víðs­vegar að úr heim­inum skoða, leggja út frá og draga lær­dóma af til­raun Íslend­inga til að skrifa og lög­leiða nýja stjórn­ar­skrá.

Því þó sú til­raun hafi farið út um þúfur, enda brugðið fyrir hana fæti af valda­stétt lands­ins við hvert fót­mál, þá þykir hún for­vitni­leg um allan heim, að sumu leyti til fyr­ir­myndar, að öðru leyti víti til varn­aðar. Um það er þessi bók. Og var þá ekki til nokk­urs unnið?

Það er alla­vega mik­il­vægt að fá þessa bók. Að kynn­ast fræði­legri nálgun á þetta mikla hita­mál. Að skoða það akademískt en ekki bara út frá rök­ræðum innan úr deil­unni sjálfri.

Reyndar er erindi bók­ar­innar víð­ara, eins og nafnið bendir til. Ein grein­anna fjallar um þátt­töku­fjár­lög og önnur fer yfir bæði til­raun Reykja­vík­ur­borgar með þá aðferð og Icesave-atkvæða­greiðsl­urnar auk stjórn­ar­skrár­máls­ins. Það síð­ar­nefnda er þó þunga­miðja bók­ar­innar, og fer vel á því.

Nú er ég hvorki stjórn­mála- né félags­fræð­ingur og mögu­leikar mínir til efn­is­legrar gagn­rýni á grein­arnar fimm tak­mark­aðir að því leyti. Engu að síður er þetta „alþýð­leg“ bók, skrifuð að mestu á manna­máli og á erindi við alla sem hafa áhuga á sam­fé­lagi sínu. Hér á eftir fara frekar sam­heng­is­lausir þankar út frá efni hennar, og ein­hverjar hnýt­ingar í það sem ég sé sem van­kanta.

1


Það kitlar alltaf þjóð­arstoltið (og það má hafa svo­leiðis) þegar við gerum eitt­hvað ein­stakt. Allavega þegar þetta ein­staka er jákvætt, frum­legt og skap­andi. Stjórn­ar­skrár­ferlið var það. Van­kant­arnir sem hér er staldrað við eru ekki stór­vægi­legir, og hug­myndir fræði­mann­anna að hvað betur hefði mátt fara ekki allar jafn álit­legar. Veit t.d. ekki með 100 manna slembivalið stjórn­laga­þing.

2


Athygl­is­vert var að lesa að ein af veiga­meiri athuga­semd Fen­eyja­nefnd­ar­innar við frum­varpið var við atriði sem lög­spek­ingar höfðu breytt frá til­lögum ráðs­ins. Þetta er eitt þeirra atriða sem styrkja mann í trúnni um að aðferðin „okkar“ hafi verið traust í grund­vall­ar­at­riðum

3


Þjóð­fund­ur­inn hefur verið hálf-heil­agur og nið­ur­stöður hans að mestu yfir gagn­rýni hafnar. Hér fær hann að mörgu leyti slæma útreið. Bæði eru nið­ur­stöður hans sagðar svo opnar og almennar að erfitt sé að ímynda sér að þær hafi verið til nokk­urs gagns eða leið­bein­ingar fyrir vinnu stjórn­laga­ráðs, og svo hitt að vinnu­brögð hans hafi um of stýrst af tísku­hug­myndum úr atvinnu­líf­inu. Aðrar leiðir hefðu senni­lega verið væn­legri til að gefa mynd af vilja þjóð­ar­innar á not­hæfu formi. Fleiri en einn greina­höf­unda staldrar við þetta og mér þykir gagn­rýni þeirra skyn­sam­leg.

4


Fræði­mennsku­nálgun gefur vissa mynd af við­fangs­efnum í mann­líf­inu, en missir af öðru. Akademísk var­færni býr til blinda bletti. Þannig er pínu spaugi­legt að sökkva sér í alls­konar smá­at­riði um skipan þjóð­fundar og kosn­ingar til stjórn­laga­þings, sem og aðkomu almenn­ings að því ferli og áhrif þess á kosn­ingar þegar mjóa sían er aug­ljós­lega fyr­ir­komu­lag lög­gild­ingar stjórn­ar­skrár­breyt­inga, sem einn rit­gerð­ar­skrif­ari nefnir í fram­hjá­hlaupi.

5


Fræðin taka stundum völdin af heil­brigðri skyn­semi, svona utan­frá séð. þannig er mikið lagt upp úr því í fleiri en einni grein að aðferðin við val Þjóð­fund­ar­full­trúa hafi verið gölluð, upp­fylli ekki ströng­ustu skil­yrði um slembival. Erfitt er að sjá að í raun­heimum hefði verið hægt að verða við þeim kröfum, né heldur hverju það hefði breytt.

6


Ég er með BA-próf í heim­speki. Sú (hálf)menntun gerir mér nán­ast ómögu­legt að kyngja notkun orðs­ins „þekk­ing­ar­fræði­legur“ í þessum greinum, sem kemur víða fyrir. Þekk­ing­ar­fræði er í sinni ein­föld­ustu mynd svar við spurn­ingu Kants: Hvað get ég vitað? Sama hvað ég velti vöngum, ég sé ekki að orðið eigi neitt erindi í setn­ingar eins og:

„Það er áhuga­verður þekk­ing­ar­fræði­legur eig­in­leiki þess­ara atkvæða­greiðslna að hér var ekki ein­ungis um mat að ræða (Ætti rík­is­sjóður Íslands að ganga í ábyrgð fyrir inni­stæð­unum?) heldur einnig laga­legt álita­efni (Ber rík­is­sjóði að ganga í ábyrgð fyrir inni­stæð­unum?)“

Er orð­inu „þekk­ing­ar­fræði­legur“ ekki ein­fald­lega ofaukið? Maður spyr sig, en getur ekki vitað.

7


Almennt er bókin alveg sæmi­lega læsi­leg óinn­vígðum, eins og gera verður kröfu um. Þar verður að hrósa sér­stak­lega þýð­and­anum Guðrúnu Baldvinu Sæv­ars­dóttur. Þetta er auð­vitað svo­lítið þyrrk­ings­legt, en alls ekki óskilj­an­legt eða til­tak­an­lega tyrfið. Sér­fræði­hug­tök og orð sem notuð eru í sér­fræði­til­gangi eru oft­ast ágæt­lega útskýrð í bók­inni og má vel klappa rit­stjóra raf­rænt á bakið fyrir að hafa gætt þess.

Og reyndar bara almennt fyrir að hafa komið út þess­ari merki­legu og mik­il­vægu bók með nýjum vinklum á bruna­mál nýlið­innar for­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár