Framsókn missir tæplega helming fylgis en Píratar tvöfalda sitt fylgi

Sam­fylk­ingin er sá stjórn­mála­flokkur sem nýtur mest fylgis þeirra flokka sem eiga full­trúa í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Alls mælist fylgi flokks­ins um 29 pró­sent,eða um þremur pró­sentu­stigum minna en þegar talið var upp úr kjör­köss­unum í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum í apríl síð­ast­liðnum. Fylgi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina tæp­lega helm­ing­ast frá því sem það var í kosn­ing­unum og Píratar rúm­lega tvö­falda fylgi sitt. Þetta kemur fram í frétt RÚV af nýrri könnun Capacent um fylgi borg­ar­stjórn­ar­flokka.

Ef nið­ur­staða könn­un­ar­innar yrðu nið­ur­stöður kosn­inga yrði eina breyt­ingin á borg­ar­full­trúum flokk­anna að Framsókn og flug­vall­ar­vinir myndu missa annan borg­ar­full­trúa sinn yfir til Bjartrar Fram­tíðar.


Píratar bæta mest við sig


Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram næst stærsti borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn sam­kvæmt könn­un­inni með um 25 pró­sent fylgi. Það er ívið lægra en þau 26,3 pró­sent sem flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í vor en myndi ekki breyta fjölda borg­ar­full­trúa sem flokk­ur­inn hefur.

[caption id="attachment_9208" align="align­right" width="150"] Halldór Auðar Svansson, odd­viti Pírata í Reykja­vík.[/caption]

Björt Framtíð mælist með 18 pró­sent fylgi, eða 2,2 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Björt Framtíð myndi bæta við sig einum borg­ar­full­trúa yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga. Sá borg­ar­full­trúi kæmi inn á kostnað ann­ars borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, sem mæl­ast nú með tæp­lega sex pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn fékk 10,5 pró­sent í kosn­ing­unum í vor.

Píratar hafa styrkt stöðu sína umtals­vert sam­kvæmt könn­un­inni og mæl­ast nú með tæp­lega ell­efu pró­sent fylgi. Þeir fengu 5,3 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Vinstri grænir bæta einnig lít­il­lega við sig og mæl­ast með tæp­lega tíu pró­sent fylgi, aðeins meira en þau 8,4 pró­sent atkvæða sem féllu flokknum í skaut í vor.

Um tvö pró­sent aðspurðra í könn­un­inni sögðum myndu kjósa aðra flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár