Pæling dagins: Eru gjaldeyrismálin meira og minna öll í uppnámi?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Á dög­unum voru allir ákærðu í hinu svo­kall­aða Aserta-máli sýkn­aðir, þeir Gísli Reyn­is­son, Markús Máni Michaelsson Maute, Karl Löve Jóhanns­son og Ólafur Sig­munds­son. Málið snýst um umfangs­mikil gjald­eyr­is­við­skipti eftir hrunið 2008 og fram á árið 2009. Þetta kom ekki öllum á óvart, sem höfðu fylgst með mál­inu, þó alltaf megi deila um for­sendur fyrir nið­ur­stöðum dóma. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort mál­inu verður áfrýjað til Hæsta­réttar, en sú ákvörðun er á borði Rík­is­sak­sókn­ara. Í Aserta-dómnum stendur meðal ann­ars orð­rétt: „Þegar bank­inn neytti þess­arar heim­ildar fórst fyrir að afla sam­þykkis ráð­herra fyrir útgáfu regln­anna sem hafði meðal ann­ars í för með sér að ekki verður refsað fyrir brot á þeim.“ Fari svo að Hæsti­réttur stað­festi þetta er ljóst að fjöldi gjald­eyr­is­mála sem gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafa haft til rann­sóknar, und­an­farin ár, eru í upp­námi.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár